Velkomin(n) á pipruðu síðuna mína;)

Hér er aðeins sagður sannleikurinn ...en aldrei allur sannleikurinn

08.05.2011 21:10:03 / bmwoman

Eurovisionlögin 2011

Já þá er komið að því, bloggið um Eurovisionlögin í ár, spáin mín og um leið Alla leið hópsins. Þið megið hafa þetta til hliðsjónar í Eurovisonveðmálum á ykkar ábyrgð. Ég hef verð um 70% sannspá undanfarin ár. Og eins og vanalega, ef einhver kemst í gegnum þetta er skylda að commenta!


FYRRI FORKEPPNI

Pólland Magdalena Tul – Jestem
Ekkert slæmt popp svosem, en útvarpslag sem fer alveg framhjá mér.
Einkunn: 5. Spá: Kemst ekki áfram. Alla Leið gengið spáir þessu áfram

Noregur Stella Mwangi – Haba haba
Jú, þetta vinnur aðeins á verð ég að segja og hún hefur sjarma stelpan. Það er húkkur í þessu. Það er þó athyglisvert hversu margir hafa minnst á brjóstin á einni í bakröddunum, það boðar ekki gott ef fólk tekur aðallega eftir slíku.
Einkunn: 6,5. Spá: Fer áfram, tólf stig frá Íslandinu í forkeppninni örugg. Alla spáir þessu áfram. 

Albanía Aurela Gace – Feel the passion
Sammála Gunna, það vantar allan húkk í þetta. Er já bara frekar leiðinlegt finnst mér.
Einkunn 4. Spá: Kemst ekki áfram. Alla leið spáir þessu áfram.

Armenía Emmy – Boom Boom
Gaman að fá aftur lag sem byrjar á Boom Boom.... Já þetta er svona lag til að fá á heilann, týpísk Eurovisonuppskrift. Allt í lagi svosem en hefur engann x-factor samt.  Armenía hefur alltaf komist áfram og það breytist ekki núna.
Einkunn 5,5. Spá: Kemst áfram, en þetta gæti verið í fyrsta skiptið sem Armenía nær ekki inná topp tíu. Alla leið spáir þessu áfram. 

Tyrkland Yüksek Sadakat – Live it up
Alla leið gengið er ekki að fíla þetta, finnst þetta gamaldags og þynnt 90´s rokk. Kannski er það það sem hefur áhrif hér – ég var auðvitað uppá mitt besta in the 90´s og fíla þetta (úrelt 90´s kelling). Söngvarinn mætti nú samt alveg vera meira sjarmerandi, en að hlusta á þetta án þess að horfa á videoið er bara snilld. Ég kemst í megastuð og kannski finnst mér ég bara verða átján aftur við að heyra þetta hehehe. Sérstaklega finnst mér skemmtilegur húkkur í seinni hluta viðlagsins.
Einkunn 8. Spá: Tyrkir komast auðvitað áfram, annað er rugl! Eftir að hafa séð live æfingu segi ég að þeir séu öruggir á topp 10 og enda trúlega á topp 5. Alla leið spáir þessu áfram, gegn eigin sannfæringu þó.  

Serbía Nina – Čaroban
Fílaði þetta lag strax við fyrstu hlustun. Þótt ég sé 90´s fíla ég þetta 60´s lag bara vel, þetta er öðruvísi, létt og jákvæð stemmning yfir þessu. Sammála Guðrúnu með að stelpan virðist líka örugg og það skiptir miklu.
Einkunn 7,5. Spá: Kemst áfram, Alla leið er sammála mér um það. 

Rússland Alexej Vorobjov – Get you
Finnst hann ekki hot fyrir fimm aura, kannski er það að hafa áhrif að ég var bara barn in the 80´s, þegar Palli var á gelgjunni. Gaurinn er með 80´s blásið hár eins og Morten Harket (=hallærislegt), get fundið samsvörun hjá Reyni með því. Finnst þetta frekar asnalegt og gaurinn tilgerðarlegur.
Einkunn 4. Spá: Rússar komast alltaf áfram, ég mun aldrei aftur spá þeim út eins og ég gerði í fyrra! Alla leið spáir þessu líka áfram.  

Sviss Anna Rossellini – In a love for a while
Fór aðeins að fíla þetta eftir 10+ hlustanir og batnar núna við hverja hlustun. Farin að heyra þetta í útvarpinu, krúttlegt og lagið sjálft gott.
Einkunn 7,5. Spá: Já svei mér þá ef ég spái þessu ekki bara áfram, þetta verður kannski það tíunda inn. Alla leið spáir þessu ekki áfram. 

Georía Eldrine – One more day
Gaman að þessu nafni... Eins og með hitt lagið með þessu nafni fíla ég þetta. Ef hún flytur þetta vel á þetta eftir að fara langt og ég vona svo sannarlega að það verði málið. Ég hækka í græjunum þegar ég heyri þetta. Og ég fíla Skunk Anansie og 4 Non Blondes, aðalböndin in the 90´s.
Einkunn 8. Spá: Flýgur áfram. Alla leið liðið spáir þessu ekki áfram og á eftir að hafa rangt fyrir sér. 

Finnland Paradise Oskar – Da da dam
Minnti til að byrja með á Tom Dice og hálfgerða stælingu á honum. En eftir talsverða hlustun er það alveg dottið út og þetta er bara nokkuð flott, krúttlegt.
Einkunn 7. Spá: Ætla svo sannarlega að vona að þetta fari áfram, en er hrædd um að svo verði ekki. Finnarnir verða trúlega aftur númer 11 eða þá 12. Alla leið spáir þessu ekki heldur áfram.

Malta Glen Vella – One life
Lagið afskapega lélegt og ég er ekki heldur að fíla þennan gaur. Röddin asnaleg, hélt þetta væri kona.
Einkunn 2. Spá: kemst ekki áfram. Alla leið sammála mér um það.

San Marínó Senit – Stand by
Gleðst yfir því að San Marínó sé með aftur, en gleðin nær ekki mikið lengra en það.
Einkunn 3. Spá: Kemst ekki áfram. Alla leið spáir þessu heldur ekki áfram.

Króatía Darina – Celebrate
Afskaplega þreytandi og eins alltsaman. Söngkonan stirð og hefur engann sjarma, eins og hún sé að reyna eitthvað og tekst alls ekki.
Einkunn 3. Spá: Kemst ekki áfram. Alla leið sammála því.

Ísland Vinir Sjonna – Coming Home
Finnst ekki rétt að senda þetta lag, það situr í mér. Lagið er þarna í ljósi aðstæðna eins og Palli orðaði það, mér finnst það vel mælt. Of venjulegt finnst mér. Matti gefur laginu þó svaka vídd og það er löngu kominn tími til að senda hann í Eurovision.
Einkunn 5. Spá: Fáir spá þessu áfram, því miður held ég að það sé niðurstaðan. Það eina sem vinnur með okkur er að væntingarnar hér heima er afskaplega litlar. Alla leið spáir þessu áfram. 

Ungverjaland Kati Wolf – What about my dreams?
Heyrt þetta áður? Ekki frá því, það er eitthvað í viðlaginu sem ég hef heyrt áður... En hún lítur út fyrir að vera góð söngkona og hér er stuð í gangi.
Einkunn 6. Spá: Kemst áfram, topp fimm kandídat. Alla leið spáir þessu líka áfram. 

Portúgal Homens Da Luta - Luta É Alegria
Hallærislegt, leiðinlegt, ekkert að gerast, þau mótmæla ekki einu sinni almennilega af einhverri ástríðu. Bara asnalegt og ekkert annað.
Einkunn 1. Spá: Þetta verður í síðasta sæti. Góður möguleiki á núll stigum. Alla leið gaf líka eldrautt ljós. 

Litháen Evelina Sašenko - C'est Ma Vie
Það er að verða einhver óskráð regla að það er eitt Disneylag í hverri keppni. Litháar taka það að sér í ár. Þessu mun ekki ganga vel frekar en öðrum Disneyballöðum.
Einkunn 3. Spá: Kemst ekki áfram, Alla leið heldur það líka. 

Azerbijan Ell/Nikki – Running Scared
Life flutningur mun hér skipta miklu máli, en mér finnst lagið ekkert spes. Þau eru mjög tilgerðarleg, hún að reyna að vera J Lo og líkingin hjá Palla við flösusjampóið í góð.
Einkunn 5. Spá: Azerbijan kemst alltaf áfram, Alla leið segir það líka. Enda þó trúlega neðarlega, þar sem ég hef heyrt af live flutningi er skelfing.

Grikkland Loucas Yiorkas feat. Stereo Mike – Watch me dance
Fíla ekki gríska dramatík (veit þetta kemur úr hörðustu átt frá sjálfri dramadrottingunni). Fer yfir mörkin og er hallærislegt, hef líka einhverjar efasemdir um flutninginn. Og þetta passar engann veginn saman, er eins og tvö lög.
Einkunn 4. Spá: Já Grikkirnir komast alltaf áfram, en það er komið að því í fyrsta sinn síðan 2003 að þeir verða ekki á topp 10. Alla leið spáir þessu áfram. 

 

SEINNI FORKEPPNIN

Bosnía Herzegóvína Dino Merlin – Love in rewind
Gamaldags gæðapopp með skemmtilegum trega (ef maður má segja sem svo) og það er einhver þjóðlagabragur á þessu líka. Vex við hverja hlustun. Kallinn sjálfur fer þó í taugarnar á mér, mér finnst hann spila ansnalega á gítar og sviðframkoman í heildina vægast sagt verulega hallærisleg og pirrandi. Ég held samt að hann hljóti að vera góður söngvari og eigi eftir að flytja þetta óaðfinnanlega. Svo held ég jafnvel að það sitji í mér þegar hann keppti árið 1999 í ljótustu peysu Eurovisonsögunnar og það var Bosnía Herz sem gaf Svíþjóð tólf stig og okkur ekkert undir lok stigagjafarinnar og gerði út um drauminn um að Íslandið héldi Eurovisionkeppnina árið 2000.
Einkunn 8,5 þegar ég sé kallinn ekki. Spá: Kemst áfram, endar á topp 10. Alla leið spáir þessu líka góðu gengi.

Austurríki Nadine Beiler – The Secret is Love
Eins og með San Marínó fagna ég því að fá Austurríkismenn aftur, en fáu öðru fagna ég. Of rólegt og vantar sérstöðu. Klippingin á gellunni líka eins og krakki haf klippt hana.
Spá: Kemst ekki áfram. Alla leið sammála því. 

Holland 3JS – Never Alone
Skemmtilegt, pínu gamaldags, bara á jákvæðan hátt. Já bara ágætis lag.
Einkunn 6. Spá: Því miður held ég að þetta nái ekki í gegn. Alla leið spáir þessu ekki áfram. 

Belgía Witloof Bay – With love baby
Það liggur við að maður gefi prik fyrir frumlegheit, því þetta svo sannarlega öðruvísi og sker sig úr. En drepleiðinlegt er það.
Einkunn 2. Spá: Kemst ekki áfram. Alla leið spáir þessu ekki heldur áfram. 

Slóvakía Twiins – I´m still alive
Þvílíkur slepjuviðbjóður.
Einkunn: 1. Spá: Ég get ekki annað en spáð þessu út, ég ætla rétt að vona að það svo verði þó ég sé pínu hrædd um annað. Held að þeirra helsti markhópur, litlu stelpurnar, muni frekar kjósa Svíann. Alla leið spáir þessu ekki áfram heldur. 

Úkraína Mika Newton – Angel
Hvað hafa mörg lög keppt í Eurovision sem heita Angel? Þetta er alltsaman vel gert, en eins og Alla leið liðið segir – þetta er Alzheimerlag og fer alveg framhjá manni.
Einkunn 5. Spá: Úkraína alltaf áfram, það er lögmál eins og lögmál Newtons. Alla leið er á því líka. 

Moldóva Zdob si Zdub – So Lucky
Þetta eru sömu hressu gaurarnir og mættu með ömmuna og trommuna um árið og þeir eru enn í stuði. Og ég líka þegar ég hlutsa á þetta. Hægt að taka nett flipp yfir þessu.
Einkunn 7. Spá: Kemst áfram. Alla leið spáir þessu áfram, en ekki allir sammála.

Svíþjóð Eric Saade – Popular
I will be popuar segir í laginu og það er trúlega eitthvað til í því. Það er allavega það sem Eric ætlar sér. Hann er að minnsta kosti hreinskilinn, ætlar að verða vinsæll og komast yfir einhverja skinku. Mér finnst Eric vera tilgerðarlegur hrokagikkur og fékk áfall þegar ég komst að því að hann fæddist á 13 ára afmælisdaginn minn! En þó er með þetta eins og svo mörg önnur sænsk atriði, það er eins og Volvo, svo ég vitni í Gísla Martein vin minn; örugg en leiðinleg. Alla leið liðið talar um stolið sapl, sem er auðvitað rétt, en kóreógrafían sem þau hrósa en jafn stolin frá t.d. Dimitri Koldun og Charlotte Nilsson sem eru álíka merkilegir pappírar og Eric.
Einkunn 4. Spá: Kemst áfram og endar trúlega á topp tíu, sem verða vonbrigði, hann ætlar sér lengra því hann nær ekki á topp fimm. Alla leið spáir honum líka áfram.
 

Kýpur Christos Mylordos - San Aggelos S’Agapisa
Sammála Alla leið genginu í að eyða sem minnstum tíma í þetta leiðinda dramaatriði, enda gerist ekkert.
Einkunn 3. Spá: Tek aftur sjénsinn á að að spá Kýpverjum út. Alla leið spáir því líka. 

Búlgaría Poli Genova – Na Inat
Ég hef átt í ástarhaturssambandi við búlgörsku lögin undanfarin ár. Veit fátt verra ein heyra framlög þeirra árin 2007 og 2009, en dýrka lögin þeirra 2008 og 2010. Beið því spennt eftir búlgarska laginu í ár, en þetta er hins vegar ósköp venjulegt lag og fer alveg framhjá manni. Gellan er augljóslega að herma eftir Pink.
Einkunn 3. Spá: Kemst ekki áfram. Alla leið spáir þessu áfram.

Makedónía Vlatko Ilievski – Rusinka
Makedónar hafa verið með frá 1998 og hafa ekki enn komið með lag sem ég fíla. Gerist það einhverntímann? Þetta er hundleiðinlegt og þreytandi og ekki í fyrsta skiptið ónei.
Einkunn 1. Spá: Kemst ekki áfram. Alla leið spáir því ekki heldur, nema Reynir. 

Ísrael Dana International – Ding Dong
Já drottingin sjálf er mætt aftur með kombakk! Stórfréttir í Eurovisionheimininum! Þó er ekki hægt að segja að Dana hafi verið aðgerðalaus í þessu 13 ár (allavega ekki lítaaðgerðalaus) Já Dana International hefur áður unnið Eurovision og lag sem heitir Ding-a-dong hefur líka unnið. En þetta eru nú ekkert spes og afskaplega hæpið að þetta fari alla leið.
Einkunn 5. Spá: Fyrrverandi sigurvegarar hafa alltaf komist áfram, á ekki von á að það breytist hér nema life flutningur verði algjör hörmung sem ég tel að geti svosem gerst. Alla leið spáir henni ekki áfram, en eru ekki sammála. 

Slóvenía Maja Keuc – No one
Slóvenía sendir einu sinni enn rólegt lag sem enginn tekur eftir.
Einkunn: 3. Spá: Kemst ekki áfram. Alla leið sammála því. 

Rúmenía Hotel FM – Change
Mér finnst þetta létt og skemmtilegt, kannski pínu 90´s Britt Popp og minnir pínu á Brainstorm, en allt er það jákvætt fyrir mér. Textinn góður. Söngvarinn sjálfur fer þó í taugarnar á mér þegar ég sé hann, þetta er eitt af þeim lögum sem eru betri ef maður hlustar en horfir ekki. Og ég bara spyr, hvar er sæti strákurinn í keppninni í ár??!? Reynir minnist á Simon Mathew, hann hefði bara átt að syngja þetta!
Einkunn 6,5. Spá: Kemst áfram og Alla leið sammála mér um það.

Eistland Getter Jaani – Rockefeller Street
Hresst, inn í dag, gæti verið nýja lagið með Rihönnu. Þetta er að virka. Hún er þokkalega örugg live, atriðið flott, hún er pínu eins og Dora í Oz. Já bara smá töff líka.
Einkunn 8. Spá: Kemst auðveldlega áfram, margir að spá þessu sigri og ég er ein af þeim. Maður fer kannski að skipuleggja ferðalag til Tallin 2012J Alla leið spáir þessu hins vegar ekki áfram, en Palli yfirdómari spáir tveimur lögum enn áfram og velur auðvitað Eistland. 

Hvíta Rússland Anastasiya Vinnikova – I love Belarus
Eruði ekki að grínast með textann? Lagið er klisja sem maður hefur oft heyrt.
Einkunn 2. Spá. Kemst ekki áfram. Alla leið liðið sammála því.

Lettland – Musiqq – Angel in disguise
Hreif mig við fyrstu hlustun og þetta hefur verið uppáhalds lagið mitt í ár síðan ég heyrði það fyrst. Mér finnst söngvarinn flottur, bæði í framkomu og ekki síður röddin. Og lagið bara fínt popp.
Einkunn 9,5. Spá: Kemst áfram. Það eru fáir að spá þessu áfram, en drengurinn á eftir að koma þessu vel frá sér og þetta fer nokkuð óvænt áfram (hjá öllum nema mér) ...eða þessu ætla ég allavega að spáJ Og Alla leið spáir þessu auðvitað ekki áfram, en Palli yfirdómari segir jáJ  

Danmörk A Friend in London – New Tomorrow
Ja sko, haldiði að gamla fíli ekki bara danska lagið, allt getur nú gerst! Þetta er fínt popp, áreynslulaust, skemmtilegt og jákvætt, maður kemst í gott skap við að heyra þetta.
Einkunn 8. Spá: Kemst áfram. Alla leið gaf líka heiðgrænt.

Írland Jeward – Lipstick
Þreytandi og asnalegt.
Einkunn: 2. Spá: Hef ekki viljað spá þessu áfram, en eftir að hafa kynnt mér málið þá segi ég að að þeir komist áfram, unglingarnir kjósa þetta. Alla leið spáir þessu líka áfram. 

 

BEINT Í ÚRSLIT 

Frakkland Amaury Vassili – Sognu
Það er ekki eins og þetta sé illa gert, vel samið lag og vel sungið og hefur líka sérstöðu. En ég er ekki að fíla þetta.
Spá: Margir spá þessu sigri, ég hugsa að þetta verði á topp fimm og er pínu hrædd um að þetta vinni. Eurovisionvorferð til Parísar hljómar reyndar vægast sagt ekki illa. 

Ítalía Raphael Gualazzi – Madness of love
Ef einhver var ánægð þegar Ítalir tilkynntu að þeir yrðu með aftur, þá er það ég. Varð hins vegar fyrir mikum vonbriðum þegar ég heyrði lagið fyrst, en það vinnur samt á með tímanum, enda öðruvísi.
Spá: Endar um miðja deild. 

Blue – I can
Já þær eru endalausar stórfréttirnar varðandi Eurovision í ár. Blue að fara að keppa fyrir Bretana! Ég er nú löngu hætt að vera hrifin af boyböndum og þetta því ekki minn tebolli. Sé jafnvel fyrir mér drama í þessu, Rússinn með hálfgert boybandsatiði, hér gæti komið til samkeppni og reiptog milli austurs og vesturs.
Einkunn 3. Spá: Gæti unnið, gæti floppað og lent neðst, en ég spái þeim sæti 2-5.  

Þýskaland Lena – Taken by a stranger
Talandi um stórfréttir... Held að Þjóðverjarnir séu að veðja á rangan hest, hún er ekki að fara að vinna aftur! Eða eru þeir að koma í veg fyrir að þeir vinni aftur? Finnst þetta pínu halló og líka pínu töff.
Einkunn: 5. Spá: Endar í sæti 8-12 

Spánn Lucía Pérez  - Que Me Quiten Lo Bailao – They can´t take the run away from me.
Ekkert slæmt þannig, en það er ekkert að gerast og það gengur bara ekki í þessari keppni. Ein vinkona mín og Eurovisionnörd sagði að þetta væri crap de lux, það finnst mér vel að orði komist.
Spá: Endar trúlega neðst á laugardagskvöldinu. Andorra ekki einu sinni með og því engin von um 12 stig.

  


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.06.2010 20:00:38 / bmwoman

EuroEuroEuro

Smávegis um Euro í viðbót, það er engin leið að hætta.  Ég fór að hugsa um forkeppnirnar, því hefur svo oft verið haldið fram fyrirfram að annar riðillinn sé sterkari en hinn, en svo talar enginn um það eftir keppni, enda kemur í ljós að þeir voru mjög svipaðir. En munurinn þótti extra mikill í ár. Hér er því röð laganna. Lögin sem komust beint í úrslit eru í grænum lit. Lögin sem voru í fyrri riðli eru með rauðan lit og seinni riðillinn er með bláan lit. Þá lítur þetta svona út:

Þýskaland
Tyrkland
Rúmenía
Danmörk
Azerbijan
Belgía
Armenía
Grikkland
Georgía
Úkraína
Rússland
Frakkland
Serbía
Ísrael
Spánn
Albanía
Bosnía Herzegóvína
Portúgal
Ísland
Noregur
Kýpur
Moldóva
Írland
Hvíta Rússland
Bretland 

Og er munur? Já! Á topp tíu eru sjö lög úr seinni forkeppninni, tvö úr þeirri fyrri og sigurlagið komst sjálfkrafa í úrslit.  Það er líka athyglisvert að við urðum í 3. sæti í undankeppninni en þetta neðarlega í úrslitum. Fimm lönd (Rússland, Serbía, Albanía, Bosnía Herz og Portúgal) voru öll fyrir neðan okkur í forkeppninni, en hafa okkur í aðalkeppninni. Erfitt að finna skýringu, helst dettur mér í hug að þeirra góðu grannar máttu kjósa. Eða var Eyjafjallajökull að hafa áhrif?

Og að lokum, ég sendi lista í byrjun maí um uppáhalds lögin mín, svona ef ég væri land. Það eru þónokkrar breytingar, svona er þetta í dag:

Búlgaría 12 stig
Rúmenía 10 stig
Belgía 8 stig
Albanía 7 stig
Ísland 6 stig
Armenía 5 stig
Litháen 4 stig
Svíþjóð 3 stig
Sviss 2 stig
Moldóva 1 stig


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.06.2010 19:41:48 / bmwoman

Eurovisionferðasagan

Hér er ferðasagan mín; þegar ég lét drauminn rætast og fór á Eurovision. Og svei mér þá, þetta eru bestu dagar lífs míns. Þetta er löng saga og kannski fyrst og fremst bara fyrir mig til að rifja upp næstu áratugina, en ég sé ekki ástæðu til annars en að deila þessum augnablikum með öðrum.

Föstudagur 21. maí – laugardagur 22. maí
Þá var runnin upp dagurinn þegar Eurovisionferðalagið hófst. Þetta var mjög skrýtinn dagur. Það var auðvitað skrýtið að það væri komið að því; ég væri að leggja af stað upp í hið mikla ferðalag, en það var fleira. Nína mín sem býr í Ástralíu hringdi í mig um hádegisbil, manneskja sem ég heyri ekki oft í. Alveg var dásamlegt að heyra í henni Nínu minni. Og það almerkilegasta var auðvitað að foreldrar mínir höfðu það loksins af um morguninn að skella sér til sýslumannsins og láta pússa sig saman. Þau voru svo komin suður um kvöldið eins og svo margir aðrir. Ég fór fyrst til Grindavíkur til Óskar, þaðan út að borða með Öddu og Línu sem voru líka í borginni og svo að skála fyrir brúðhjónunum. Það var boðið uppá kokteil á hótelinu. Kristín Harpa frænka var að fermast á Hvítasunnudag og þess vegna voru margir úr pabba fjölskyldu í bænum og mættu í partýið. Svo voru Gunna frænka og Rebekka líka í borginni og mættu. En eftir að hafa skálað fyrir brúðhjónunum og hlustað á enn eina magnaða ræðu hjá afa dreif ég mig aftur af stað til Grindavíkur og lagði mig aðeins held ég verði að segja. Það var nefnilega ræs klukkan fimm, Ósk var svo indæl að vakna með mér og skulta mér á völlinn. Þá tók þetta vengjulega við, flugferð og lestarferð. Bryndís náði svo í mig á lestarstöðina í Kongsberg en þangað var ég komin um hálf fjögur að norskum tíma. Það var 27 stiga útihiti þegar ég var í lestinni og enn heitara inní henni, ég var því orðin hálf meðvitundarlaus og ansi þreytt. Það var því ekkert skellt sér í Eurovisionlandið þann dag heldur bara slappað af hjá Bryndísi og spjallað yfir hvítu í glasi.

Sunnudagur 23. maí
Þá var komið að fyrstu ferðinni í Eurovisionland. Tók rútu í bæinn þar sem það gengu fáar lestar þennan dag, það var jú Hvítasunnudagur. Fór nú út á réttum stað, en gleymdi að spyrja í hvaða átt ég átti að fara og það kom auðvitað í ljós að ég valdi vitlausa átt, svona þegar ég fann einhvern til að spyrja. En ég hitti almennilegan mann sem sagði mér hvaða strætó ég þyrfti að taka. En til að byrja með þurfti ég að komast yfir götuna og til að komast þangað þurfti ég að labba aðeins og fara yfir brú. Til að auka á dramað fór svo að rigna og ég var farin að halda að ég hefði það aldrei af að komast í Eurovisionlandið. En ég komst yfir götuna og fljótlega rakst ég á strætóstoppistöð. Maðurinn hafði sagt mér að taka strætó númer 31. Ég sá í skýlinu að hann stoppaði þar. Ég ákvað að setjast aðeins niður, skýla mér aðeins frá rigningunni og athuga hvort það kæmi kannski einhvern tímann einhver strætó. Og þá var lukkan komin á mitt band; eftir c.a. tvær mínútur kom strætó og hann var númer 31! Ég hoppaði inn og út fljótlega þegar hann stoppaði við Telenor Arena þar sem öll herlegheitin fóru fram. Þar fékk ég afhendan Fan-passann minn og Share the Moment tösku sem innihélt Fanbókina sem ég ætlaði að kaupa mér, handbók, símakort með smá inneign og Oslópassa sem virkaði þannig að ég fékk ókeypis í öll almenningssamgöngutæki á Oslóarsvæðinu til 30. maí. Sparaði á þessu t.d. 1600 kall á dag í lestarferðunum. Auk þess gekk sér strætó sem kostaði ekkert í frá höllinni og niðrí bæ allan daginn fyrir þá sem voru með Nördapassa og blaðamannapassa. Króatía var að æfa sig þegar ég mætti í salinn í fyrsta skiptið. Vá, þvílík höll og ljósashowið og allt það! Þær sungu líka ágætlega þessar króatísku og ég fékk bara gæsahúð og læti, samt er það lag ekki eitt af mínum uppáhalds. Ég sat þarna áfram og fylgdist með af aðdáun, þennan dag voru líka Georgía, Tyrkland, Spánn, Noregur, Bretland, Frakkland og Þýskaland á æfingu. Þetta var mjög skrýtið að vera allt í einu mættur þarna, en samt svo raunverulegt. Hinn norski Didrik var líka mun betri á þessari æfingu en úrslitakvöldinu fannst mér. Ég tók svo eftir því að flestir aðrir sem voru viðstaddir voru blaðamenn og langflestir þeirra karlkyns og samkynheigðir. En þeir voru afskaplega yndælir og miklir sjéntilmenn, stóðu upp fyrir manni í strætó og svona. En þess má geta að hún Lena, sem vann svo keppnina, átti afmæli þennan dag og þýsku blaðamennirnir sungu afmælissönginn fyrir hana, en hún virtist ekkert fíla það neitt sérstaklega.

Mánudagur 24. maí
Skipulagið hjá Norðmönnunum var alveg meiriháttar, ég verð nú bara að koma að því. Allir þessir strætóar, nóg af þeim líka og maður þurfti eiginlega aldrei neitt að bíða. Eins var með lestarkefið, ef maður þurfti að skipta voru allaf strákar í gulum vestum sem sögðu manni hvert maður ætti að fara. Ég fékk líka sent á maili á hverjum morgni dagskrá dagsins af því ég var með þennan Fan-passa. Ég var einmitt að kíkja á póstinn minn þennan mánudag, í hádeginu, þegar ég sá að ég mátti mæta á fyrsta rennsli á Semi Final 1 klukkan þrjú. Ég það voru 8 mínútur í að lestin færi, við Bryndís stukkum af stað, hún brunaði með mig niður á lestarstöð og ég rétt náði á harðahlaupum. Smá stress, var komin í Telenor Arena rétt fyrir þrjú og já rétt náði þessu öllu. En það var nú ekki síðra að vera viðstödd svona rennsli. Samt fannst mér pínulítið eins og ég væri að svíkjast um; eins og ég væri að kíkja í jólapakkana á Þorláksmessu, því allt showið var keyrt í gegn, öll grafík og þess háttar, og á skjánum sem voru í salnum sá ég hvernig sjónvarpsútsendingin yrði. Það samviskubit hvarf þó alveg á showinu daginn eftir. Eftir rennslið fór ég svo að fá mér að borða í byggingu sem var ætluð fyrir okkur nörda og blaðamenn. Það var oft bara vesen að þurfa að borða, drekka og fara á klóið, maður nennti ekki að eyða dýrmætum í tíma í svoleiðis vitleysu, en svona var þetta í Eurovisionlandi. Ég var svo eitthvað að brasa á FanDeskinu svokallaða, þar var ég að taka þátt í spá um hverjir kæmust áfram úr forkeppnum. Þar kom maður til mín og gaf mér disk frá gríska goðinu Georgiusi, sá var greinilega að reyna að hala inn atkvæði. Í því birtist allt í einu Pólverjinn Marcin á svæðinu, eða HerraSætasturíEurovision2010. Ég fékk auðvitað flog, týndi diskinum frá Georgiusi, en tókst einhvern veginn að taka mynd og fá eiginhandaráritun hjá Marcin. Við höfum verið svona þrjátíu sem hópuðumst að honum og fengum eiginhandaráritun og ég var held ég eina stelpan. En hann var flottur, oh my god! En þegar ég hafði aðeins jafnað mig fékk ég nýjan disk með Georgusi og sveif svo bara um það sem eftir var dags.

Þriðjudagur 25. maí
Þá var fyrsti stóri dagurinn runninn upp og já kannski var maður bara smá spenntur... Ég eyddi þó stórum hluta dagsins í að vera týpískur túristi, enda byrjaði keppnin ekki fyrr en klukkan níu að norskum tíma. Byrjaði á að kíkja í HM í Kongsberg. Ég gat nú ekki verið þekkt fyrir annað en að fara í eins og eina fatabúð. Verslaði reyndar skammarlega lítið, einn hlýrabol, þrjá nylonsokka í pakka og smávegis handa stelpunum hans Berta. Samt var alls ekki dýrt þarna. En þetta var nú engin verslunarferð! Svo var það lestarferð eins og vanalega. Að þessu sinni dreif ég mig þó ekki beint í Telenor Arena, heldur skottaðist ég um Karl Johan götuna, labbaði uppað Kongungshöllinni og niður á Ráðhústorg, þar sem Eurovisionþorpið var staðsett. Ég var með vitlausan dag í huga í bæði skiptin sem ég kom þarna og sá því aldrei neinn flytjanda performa, en þangað mættu allir keppendur einu sinni. En ég keypti mér póstkort og Share the moment músamottu. Svo ætlaði ég að hitta Beggu. Það varð nú smá drama þar sem síminn minn varð batteríislaus. En sem betur fer fann Begga mig, mikið var ég fegin að sjá hana! Við fengum okkur pizzu og tókum svo sérstakan strætó sem gekk í Höllina. Já skipulagið hjá Norsurunum var flott, ekki bara fyrir okkur nördana, heldur ekki síður fyrir þá sem voru að mæta á keppnirnar. Við vorum frekar seinar í því og pínu stressaðar og fannst ferðin taka óratíma. Svo þurfti að labba helling að okkur fannst (það var ekki svo í hin skiptin, þótt það væri jafn langt). Svo var staðið í biðröð í vopnaleitinni, á klóinu og í veitingasölunni. En þetta hafðist auðvitað allt. Að vera kominn þarna á showið var auðvitað engu líkt. Mér leið eins og ég væri loksins komin heim. Búin að finna minn heimavöll. Mína köllun í lífinu. Stemmningin var hrikalega góð og það að vera partur af þessu öllu saman... Vá! Ég get eiginlega ekki lýst þessu mikið betur, en þetta var algjör snilld. Það sem kom kannski mest á óvart – og átti sérstaklega við þriðjudag og laugardag – var að það var ansi misjöfn stemmning eftir lögum. Stundum varð allt vitlaust, stundum datt stemmingin alveg niður eins og liðið svæfi. En stemmningin sagði ekki endilega til um hvernig atriðinu myndin ganga. Og eins og árið áður var Ísland í síðasta umslaginu. Ég veit ekki hvað er í gangi, á að láta alla Íslendinga fá hjartaáfall? Ég var þó mun vissari í ár en í fyrra um að við værum í síðasta umslaginu, enda virkilega góð stemmning yfir íslenska laginu. Hera, Grikkinn og Serbinn áttu salinn öðrum fremur. En maður labbaði stoltur út úr Telenor Arena þetta kvöldJ Annars var ég þokkalega sátt við úrslitin. Hefði þó viljað sjá Slóvakíu áfram á kostnað Hvít-Rússa og Rússarnir hefðu líka mátt detta út. En þetta var yfirgengilega gaman og við Begga löbbuðum stoltar og ánægðar út. Tók svo síðustu lest til Kongsberg og var komin þangað rétt um tvö og Bryndís svo elskuleg að ná í mig á lestarstöðina.  Þvílíkur gestgjafi! Já og kannski í lokin – í blábyrjuninni á þessari keppni, þegar kynnarnir eru búnir að segja “Good everning Europe” þá sést í mig í sjónvarpinu. Ekki mjög skýrt, en ég sést hahaha.

Miðvikudagur 26. maí
Þennan dag var aftur rennslisdagur. Ég tók bara lestina aðeins fyrr og var því aðeins tímanlega í því. Þennan seinni riðil er ekki hægt að kalla annað en dauðariðil. Það var eiginlega bara sárt að það kæmust ekki nema 10 lög áfram og hér voru mörg af mínum uppáhaldslögum. Þetta var líka svo erfitt í spánni, því oft gekk flutningurinn illa, eins og t.d. hjá Michael hjá Sviss, sem var með snilldarlag, á móti t.d. Harel frá Ísrael sem var með þetta líka ömurlega lag en söng eins og engill. Var aldrei betri en á þessari æfingu og maður hreinlega lyftist uppúr sætinu og hreifst með. Það sama má segja um gelluna frá Úkraínu; með þennan óaðfinnanlega flutning en hundleiðinlegt lag. Búlgarinn minn kom þó á óvart, hann er barasta fínasti söngvari. Danirnir voru skelfilegir á þessari æfingu, eins og þau nenntu þessu ekki. Að mæta á þessa æfingu gerði manni því ekkert auðveldara fyrir að reyna að spá um úrslitin. En innan um alla þessa suðurevrópsku homma sem voru þarna kom ég auga á einn Íslending sem ég hafði séð tilsýndar áður, en það er hann Siggi Gunnars sem var á N4 og er núna á útvarpsstöðinni Kananum. Ég sá hann þarna í salnum og fór að spjalla við hann, kýpversku hommunum sem voru í næstu röð fyrir framan til mikillar ógleði. Þeir virtust abbó útí mig að kunna meiri íslensku en þeir, en þeir kunnu samt að segja sjáumst í daðurstóni við Sigga. En ég fylgdist með síðustu lögunum með Sigga og við spjölluðum auðvitað um Eurovision milli laga og eftir að lögin voru búin. Allt í einu segist hann ætla að taka viðtal við mig og ég fékk eiginlega engann sjéns á að mótmæla. Hann var auðvitað með allar græjur með sér og þetta gekk bara ágætlega held ég, fyrir utan skandalinn að halda því fram í útvarpið að Kýpur kæmist örugglega ekki áfram – en svona er nú lífið
J
Þetta var líka sárabót fyrir þá sem voru að reyna að sjá mig í sjónvarpinu. Eftir þetta fór ég með strætó niðrí bæ, skrapp aðeins aftur í Eurovisionþorpið og tók Flash Mob Dance æfingu. Fór svo og fékk mér að borða á fínum stað áður en ég hélt heim til Kongsberg.

Fimmtudagur 27. maí
Aftur stór dagur í dag. Semi-Final 2. Við Begga vorum fyrr á ferðinni í þennan dag en á þriðjudeginum. Fannst við jafnvel of snemma í því, það er alltaf erfitt að finna hinn gullna meðalveg. Borðuðum kvöldmat ef hægt er að kalla það það, í höllinni. Einhverjar langlokur sem voru eiginlega bara hveiti. En who cares... Þetta var flott show eins og á þriðjudeginum, en stemmningin þó jafnari fannst mér allavega. Við sátum reyndar í hóp af dönnuðum Svíum, það hefur kannski haft eitthvað að segja. Annað en blóðheitu Makedónarnir sem voru hjá okkur á þriðjudeginum. En ég var í stuði og söng með lögunum ef mér sýndist sem svo. Ég var búin að segja við Beggu áður að ég gæti ekki talað norsku. Hún fór svo að efast um það þegar ég fór að söng hebresku, búlgarísku og króatísku reipirennandi. Og ég stóð næstum ein upp þegar Lys Assia var kynnst til leiks. Fannst það lélegt af áhorfendum að standa ekki upp fyrir henni og klappa duglega. Og þegar neðstasætissyrpan var sýnd, þá endanlega flippaði ég yfir þegar Plastic Bertrand birtist á skjánum. Þá var nú gott að vera viðbúin, ég var búin að sjá þetta áður auðvitað
J
Begga var nú farin að skammast sín verulega fyrir mig og komin hálf undir stólinn. Það var auðvitað enn ýktara að láta svona af því við vorum innan um alla þessa dönnuðu Svía. En þegar Kýpur komst svo áfram – óvænt verð ég að segja – þá gat hún strítt mér á því. Söng kýpverska lagið aftur og aftur á leiðinni í strætóinn. Og ég sem hafði haldið því fram í útvarpinu að þeir kæmustu örugglega ekki áfram! En svona er þetta, Eurovision er óútreiknanlegt (eða ég get klikkað big time hahaha).

Föstudagur 28. maí
Lítið um þennan dag að segja, nema hvað ég yfirgaf Kongsberg og hana Bryndísi mína og kallana hennar og flutti mig til Beggu í sveitasetrið við Hamar.  

Laugardagur 29. maí
Þá var hinn eini sanni dagur upp. Dagurinn sem ég hafði líklega beðið eftir síðan ég sá Bobbysocks taka dolluna í Gautaborg árið 1985 og heillaðist mjög af keppninni strax þá, sjö og hálfs árs. Gömul líkamleg einkenni frá 80´s tímanum gerðu strax vart við sig í morgunsárið, þ.e. maður vaknaði snemma spenntur og svo allt pissustandið. Já orðtakið að pissa á sig af spenningi er ekki til fyrir tilviljun. Á Eurovisionkeppnunum in the 80´s var þetta vandamál hjá mér, þá var í mesta lagi eitt auglýsingahlé og erfitt þegar maður þurfti alltaf að vera að pissa. Þetta hefur svo aðeins elst af mér, en þennan dag kom pissuspenningurinn stekur inn, og ekki bara hjá mér, heldur Beggu líka. Ég veit ekki hversu margar klósettferðirnar voru þennan dag, en þær voru MARGAR. Við vorum alltaf meira og minna í spreng og var bjórdrykkjan samt mjög hófleg. Svo vorum við bara almennt séð spenntar og stressaðar fyrir hönd íslenska hópsins. Og maður hugsaði heim, hjá því var ekki komist. Mér fannst eins og ég væri ekki heima á jólunum. Í mínum huga er margt sameiginlegt með Eurovision og jólunum. Það hafa skapast skemmtilegar hefðir í kringum báða atburði og tilgangurinn er að fjölskyldan komi saman og hafi gaman. Ekki bætti úr skák að Rán mín átti afmæli þennan dag. Ég hef kíkt í veislu til hennar síðustu þrjátíu árin líklega, aldrei misst úr ár, það var líka skrýtið. Einn vinnufélagi minn, hann Jónas, varð líka þrítugur í vikunni og hélt svaka partý um kvöldið. Ég missti af þessu öllu og var með smá heimþrá á köflum yfir daginn. En það hvarf alveg um kvöldiðJ En við tókum semsagt lestina til Osló, tékkuðum okkur inná hótel sem við höfðum splæst á okkur í tilefni dagsins og fórum flott út að borða á einhvern ítalskan stað bara uppúr fjögur. Og eftir nokkrar klósettferðir í viðbót tókum við strætóinn fræga einu sinni í höllina frægu. Að þessu sinni spjölluðum við þýskt par (tvo karlmenn) á leiðinni og þeir voru eiginlega kjaftstopp yfir Eurovisionþekkingu minni hehehe. En þegar í höllina kom var þetta sama og venjulega; vopnaleit, finna sætin sín, veitingasölu og klósettið auðvitað. Að þessu sinni vorum við uppí stúku í efstu röð útí horni og sáum því vel yfir allt. Við vorum svo heppnar að hitta ungt, norskt, skemmtilegt par (strák og stelpu í þetta skiptið) og héngum með þeim frammá gangi í dágóða stund og spjölluðum. Ekki skemmdi fyrir að þau héldu að við værum 24 og 26J Reyndar héldu þau líka að við værum par, en það er nú kannski bara í stíl við allt þarna. En svo varð klukkan loksins níu og showið byrjaði. Ég missti nú af honum Jimmy Jump sem skaust inná sviðið hjá Spáni, ég var svo upptekin við að skipta um kort í símanum mínum, því eitt af því sem fylgdi með fanpakkanum var norskt símakort með 50 kr NOK inneign – sem ég notaði að sjálfsögðu til að kjósa Heru. Það er varla hægt að lýsa stemmningunni þegar röðin kom að okkar litlu þjóð. Um leið og Ísland birtist á skjánum í gula litnum varð allt vitlaust. Fólk öskraði bara Hera Hera, stóð upp og söng með laginu og klappaði. Miðað við okkar sæti náðum við að fanga þessa stemmningu ansi vel. Ég hef aldrei upplifað aðrar eins þrjár mínútur á minni ævi, þetta var sko gæsahúð, brauðfætur, hjartsláttur og jafnvel nokkur tár... þvílíkt! Já þjóðarstoltið sagði sko heldur betur til sín og ég hélt hreinlega að við værum að fara að vinna þetta, en Begga reyndi nú að koma mér niður á jörðina. En það verður að segjast að stemmarinn hjá hinni þýsku var næstum því jafn mikill og hjá Heru og það merkilegasta er að þær slóu báðar hinum norksa Didirki við. Það er nú eiginlega lögmál að það er mesta stemmningin hjá heimalandinu, en ekki í ár. Lagið hans Didriks er reyndar mjög rólegt, en það er sama, þetta var óvenjulegt. Stigagjöfin var svo eins og hún var, varð því miður ekki spennandi þegar leið á eins og það hefur alltaf verið síðan fjöldi þjóða sem máttu greiða atkvæði fór yfir 30. Fyrst hélt maður reyndar að Danir væru að taka þetta, þá er ég nú sáttari við Lenu þótt röddin hennar fari í pirrurnar á mér og mér finnist þetta lag ekkert spes. Hins vegar er þetta líklega það besta sem gat komið fyrir efnahag Evrópu og Þjóðverjar hafa nú þegar lofað að þetta verði flottasta keppni ever... og ég efast reyndar ekkert um það og er strax farin að hlakka til, að sjálfsögðu. Spurningin er bara hvort maður á að skella sér... En eftir keppni var það bara strætó í bæinn auðvitað. Það var reyndar smá umferðarteppa og ég notaði tækifærið og hringdi heim að taka stemmarann í Eurovisionpartýinu í Lönguhlíðinni. Það var nú svosem ekkert svaka stemmari þar, en það var gaman að heyra hljóðið í liðinu. Þá tók við smá snurfus á hótelinu og svo skelltum við okkur út á lífið. Fórum á klúbb þar sem Eurobandið átti að vera að spila, en misstum allavega af því. En það var spiluð Eurovisontónlist útí eitt og við skemmtum okkur vel. Það var stappað þarna, þó eins og á fleiri stöðum mest um samkynhneigða, myndarlega karlmenn. Og það var yfir höfuð mikið af fólki í bænum. Það voru reyndar tónleikar með AC/DC í Osló þennan dag líka, svo bærinn var fullur af mönnum, ýmist vel farðaðir í glimmerdressum með mega hárgreiðslu eða skeggjaðir og síðhærðir í AC/DC bol, semsagt mjög fjölbreytt flóra.  

Sunnudagur 30. maí
Morgunmatur á hótelinu, við Begga frekar þreyttar en ánægðar, svo var verið að endursýna keppnina á NRK. Við náðum fyrstu lögunum fyrir tékk-út og lestarferð heim. Það var svo bara blíða í Hamri og við eyddum megninu af deginum útá palli að sóla okkur. Fórum svo út að borða og Begga rúntaði svo með mig um bæinn. Fengum okkur ís, hann var nú ekkert spes þarna hjá þeim. Begga er að hugsa um að opna sjoppu þarna, það myndi slá í gegn. Svo var bara slökun. Sá loksins myndina Hangover. Begga sofnaði, ég vildi að ég hefði líka sofnað. Við fýluðum ekki þessa mynd, erum meira fyrir hámenningu eins og Eurovision;) En svo var verið að endursýna keppnina á NRK3 og við komum einmitt inní prógrammið nokkurn veginn þar sem við skildum við um morguninn. Horfði á öll lögin, en ákvað svo að fara í bælið, það var langt ferðalag hjá mér næsta dag.

Mánudagur 31. maí
Þennan dag fór ég heim til Íslands, en ég verð að segja að mig langaði bara alls ekkert heim. Það var búið að vera svo frábært þarna úti, ekki bara á Eurovision, heldur ekki síður í rólegheitunum hjá Beggu og Bryndísi. En já það var lestarferð á flugvöllinn og flug heim. Ósk náði svo í mig á völlinn, fór með henni í Grindavíkina og náði í bílinn. Fór þaðan á Hamborgarafabrikkuna þar sem ég hitti Öddu og Heiðmar þar sem ég sagði þeim ferðasöguna meðan við gæddum okkur á góðum mat. Svo ákvað ég að keyra bara alla leið heim og var komin í H30 uppúr miðnætti. 

Nokkrar spurningar og svör í lokin:
Varstu beðin um að segja Eyjafjallajökull í ferðinni? Já
Fannstu fyrir því að við værum smáþjóð? Hvernig tók fólk því að þú færir frá Íslandi? Ég fann ekki annað en velvild fyrir því að vera frá Íslandi, enginn minntist á bankahrunið við mig (ég var svosem ekkert að flagga því að ég ynni í banka). En flestir sögðu við mig að þeir fíluðu íslenska lagið “I love Hera” sagði fólk og mér leið eins og stoltri móður hennar.
Voru engin myndarlegir, gagnkynhneigðir menn þarna? Nei, spurjið bara Beggu ef þið trúið mér ekki, allir þessir myndarlegu voru gay.
Hvert er svo uppáhaldslagið þitt þegar allt er tekið saman? Búlgarska lagið. Það lenti reyndar í 15. sæti af 17 í dauðariðlinum á fimmtudeginum, en er algjör snilld og hann er eini söngvarinn á sviðinu og gerir þetta bara vel finnst mér. Stuðlag. Sjá hér http://www.youtube.com/watch?v=iMh_3nGS5P8&feature=PlayList&p=6A2DECC443CE5ACE&playnext_from=PL&playnext=1&index=39


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.05.2010 19:07:42 / bmwoman

Eurovision 2010

Jæja, þá er komið að því að ég bloggi aðeins. Vonandi verða fleiri Eurovisionblogg, kannski meðan ég verð í Norge eða þá, sem er kannski líklegra, þá skrifa ég ferðasöguna þegar ég kem heim. En hér kemur mín skoðun á lögunum í ár. Ég gef þeim persónulega einkunn á bilinu 0 til 10 og svo spái ég um hvar lagið lendir. Þið megið hafa þetta til hliðsjónar í Eurovisionveðmálum, en það er á ykkar ábyrgð! Ég var með svipaðan árangur og Alla leið gengið í fyrra, rétt um 70%. Ég læt líka spánna þeirra fylgja með svo langt sem hún nær – ég verð komin til Noregs þegar síðasti þátturinn fer í loftið ef Eyjafjallajökull ætlar ekki að stríða mér og sé síðasta þáttinn líklega ekki fyrr en ég kem heim aftur. En ég spái spennandi keppni, mjög erfitt eins og er að spá hverjir verða á topp tíu....

 

FYRRI FORKEPPNI 25. MAÍ 

Moldóva Sunstroke Project & Olia Tira – Runaway
Sammála Reyni með að þetta sé betri byrjun á keppninni en oft áður, þær hafa oftast byrjað á einhverju rólegu, svo þetta er skemmtileg tilbreyting. Og ég er líka sammála Palla með að það að saxófónhúkkurinn sem er það eina góða við lagið.
Einkunn 5,5. Spá: Kemst áfram. Alla Leið spáir þessu áfram. 

Rússland Peter Nalitch – Lost and forgotten
Þetta lag hefði kannski átt erindi í keppnina árið 1956. Lost and forgotten er réttnefni á rússnesku leiðindunum. Rússneska stórveldið er fallið.
Einkunn 2. Spá: kemst ekki áfram og lendir trúlega neðst. Niðurlæging fyrir Rússana, en þeir geta bara skammast sín fyrir að senda þetta. Alla Leið spáir þessu ekki áfram. 

Eistland Malcom Lincholn – Siren
Eistar fá prik fyrir að koma með eitthvað öðruvísi. Ég er sammála Reyni að þetta heillar mig meira live, hann er svo lifandi á sviðinu, en myndbandið er alveg steindautt.
Einkunn 6,5. Spá. Kemst áfram en gengur kannski ekki frábærlega í aðalkeppninni. Alla leið spáir þessu áfram. 

Slóvakía Kristina – Horehronie
Án ef laaangbesta framlag Slóvaka til keppninnar hingað til. Þetta er bara hið fínasta lag.  Alltaf spurning hvernig svona ungar stelpur standa sig live. En ég vona að hún ráði við þetta og gangi vel.
Einkunn 7,5. Spá: Kemst áfram. Alla Leið spáir þessu áfram. 

Finnland Kuunkuiskaajat - Työlti ellää 
Eins og með Eistana verð ég að gefa Finnunum prik fyrir að gera eitthvað öðruvísi. Þetta er svosem vel gert, en ég er ekki að fíla þetta og held að það séu flestir sammála mér.
Einkunn 5. Spá: Kemst ekki áfram. Alla Leið spáir þessu áfram.

Lettland Aisha – What for (Only Mr. God Knows)
Mér finnst lagið sjálft mjög lélegt, eins og höfundurinn sé að semja músík í fyrsta skipti. Þessi söngkona er líka tilgerðarleg.
Einkunn 3,5. Spá: Kemst ekki áfram. Alla Leið spáir þessu áfram. 

Serbía Ovo je Balkan -  Milan Stanković 
Sammála liðinu með það að það er eitthvað pirrandi bæði við strákinn, röddina hans,  hárið (sléttujárnsverðlaunahafinn) og svo lagið sjálft. Samt finnst mér þetta alveg ágætt. Hef verið með þetta lag talsvert á heilanum, enda var það síðast á dagskrá í þætti eitt sem ég hef OFT horft á.
Einkunn 6. Spá: Kemst áfram. Alla Leið spáir þessu ekki áfram. 

Bosnía & Herzegóvína Vukašin Brajić - Thunder and lightning
Við skrif á fyrri forkeppninni þurfti ég að hafa sérstaklega uppá þessu lagi, því ég mundi ekkert eftir því. Gleymanleg lög boða ekki gott. Þetta er samt ekki alslæmt, en það vantar neistann. Held samt að þetta komist áfram, góðir grannar kjósa þetta.
Einkunn 5. Spá: Kemst áfram. Alla Leið spáir þessu ekki áfram.

Pólland Marcin Mroziński - Legenda
Þetta er án efa flottasti gaurinn í keppninni í ár og ég get ekki beðið eftir að hitta hann! Búin að skipta út mynd af Petterson fyrir hann desktoppinu sem ætti að segja allt sem segja þarf. Dead gorgeus!!! Og á ég að segja eitthvað um lagið líka? Það er ekkert spes, eitthvað samkurl og vaðið úr einu í annað. En who cares, ég er að hugsa um að kjósa hann! Ps. hann er Vog.
Einkunn 6 (er það ekki við hæfi hehehe) Spá: Því miður er ég hrædd um að hann komist ekki áfram. Alla Leið spáir þessu ekki áfram.

Belgía Tom Dice – Me and my guitar
Þetta er hins vegar gaurinn sem allar hinar gellurnar á Íslandi fíla. Flestar konur sem ég þekki á aldrinum 14-52 ára liggja kylliflatar núna. Og já hann er Bogmaður stelpurJ Þetta er fínasta lag og flott rödd, en ég er persónulega meira fyrir fjörugri lög.
Einkunn 6,5. Spá: Kemst áfram, tólf stig frá Íslandi, a.m.k. í forkeppninni og trúlega í aðalkeppninni líka. Alla Leið spáir þessu áfram.

Malta Thea Garrett – My Dream
Henni Theu langar að vera Chiara og Jóhanna Guðrún. Tekst ekki. Lagið heldur ekkert spes. Og ef hún verður með þennan fugl á sviðinu – kræst!
Einkunn 3. Spá: Kemst ekki áfram. Alla Leið spáir þessu ekki áfram.

 Albanía Juliana Pasha - Nuk mundem pa ty 
Já bara alveg ágætis popplag. Palli heldur því fram að hún sé fín söngkona og hún lítur líka út fyrir að vera örugg.
Einkunn 7. Spá: Kemst áfram. Alla Leið spáir þessu heldur ekki áfram.

Grikkland Yiorgos Alkaios & Friends  - Opa
Týpískt grískt Eurovisionlag, fjörugt en bara sæmilegt. En þessi söngvari er bara forljótur, hefur ekkert charisma og getur ekki hreyft sig. Það er ólíkt Grikkjum að senda þannig mann. Það liggur við að ég sakni Sakis, hann myndi rúlla þessu upp!
Einkunn 4. Spá: Kemst áfram, margir góðir grannar, en mun ekki ganga vel í aðalkeppninni. Alla Leið neyðist til að spá þessu áfram líka.

 Portúgal Filipa Azevedo -  Há dias assim
Ég er ekki mjög heilluð. Mér finnst þetta dálítið gamaldags, mér detta í hug 80´s Eurovisionlög. Hefði passað betur inn þá en nú. En hún syngur svosem vel og hefur eitthvað við sig stelpan.
Einkunn 4. Kemst áfram, gæti verið dómnefndaratkvæðið. Alla Leið spáir þessu áfram.

Makedónía Gjoko Taneski - Jas ja imam silata 
Leiðindi frá Makedóníu eins og vanalega. Leiðindarokk að þessu sinni.
Einkunn 2. Spá: Kemst ekki áfram. Alla Leið spáir þessu ekki áfram.

Hvíta-Rússland 3+2 Butterflies
Nafnið á hópnum, lagið, boðskapurinn og framsetningin minni á “svissnesku” sexmenninana í Six4One sem kepptu árið 2006 og enginn man eftir nema hörðustu Eurovisionnördar. Boðskapurinn er auðvitað góður, en þvílík leiðindi og tilgerð!
Einkunn 3. Spá: Kemst ekki áfram. Alla Leið spáir þessu áfram, tilneydd.

 Ísland Hera Björk  - Je ne sais quoi 
Ágætis stuðlag. Minnir kannski einum of mikið á This is my life, en getur gert góða hluti ef vel gengur með flutninginn.
Einkunn 7. Spá: Kemst áfram. Alla Leið spáir þessu áfram. 
 

SEINNI FORKEPPNI 27. MAÍ

Ég verð að segja að þessi seinni riðill er mjög erfiður í spá og ég er langt frá því að vera örugg í spádómum mínum! Það eina sem mér finnst vera á hreinu eða að Holland, Slóvenía og Kýpur komast ekki áfram, en Alla Leið gengið er nú ekki einu sinni sammála mér með það. En annars getur ALLT gerst! 

Litháen InCulto - East Europe Funk
“Get up and dance” já það þarf ekki að segja mér það tvisvar. Ég er staðin upp og farin að dilla afturendanum. Gott stuðlag, skemmtilegir gæjar í köflóttum buxum eins og Hvanndalsbræður. Gaurinn úr LT United sem flippaði yfirum í Aþenu 2006 og er núna í myndbandinu í góðum fíling með vodkaflösku er rúsínan í pylsuendanum.
Einkunn 8. Spá: Kemst áfram. Alla Leið spáir þessu líka áfram.  

Armenía Eva Rivas – Apricot Stone
Af öllum þessum lögum var þetta eina lagið sem heillaði mig þegar ég heyrði það í fyrsta skipti. Eva er líka einstaklega örugg og glæsileg kona og hún hefur je ne sais quoi! Ég spái því að hún vinni þetta í ár. Armenum hefur alltaf gengið vel, enda Armenar útum alla Evrópu og núna fíla hinir þá líka.  Yerevan 2011!
Einkunn 8,5. Spá: Sigurvegarinn 2010. Alla Leið spáir þessu líka áfram.

 Ísrael Harel Skaat - Millim
Ég segi eins og dr. Gunni, mér finnst þetta bitlaust. Þetta er á svipuðum standard og lagið hennar Dönu International sem Boaz söng fyrir tveimur árum síðan. Fullt af liði fýlar þetta, en ég er ekki þar á meðal.
Einkunn 4. Spá: Kemst áfram. Alla Leið spáir þessu áfram.  

Danmörk Chanée & N'evergreen – In a moment like this
Danir senda lag sem mér finnst ekta sænskt, þ.e.a.s. örugg melódía og vindvél. Þetta lag er efst í könnuninni hjá Eurovisionnördunum. Ég er kannski að falla í sömu gryfju og með Alexander Rybak í fyrra, en ég trúi því ekki að þetta vinni. Og svo verð ég að minnast á hárið á gaurnum .....farðu í klippingu!
Einkunn 5. Spá: kemst áfram, verður um miðja keppni. Alla Leið spáir þessu áfram. 

Sviss Michael von der Heide - Il pleut de l'or 
Þetta er svolítið öðruvísi og ég fíla þetta alltaf meira og meira. Minnir aðeins á Ljúfa Líf með Palla. Gaman með jakkana, eins og öðrum sé stolið frá Haffa Haff og hinum frá Palla.
Einkunn 8. Spá: Því miður held ég að þetta komist ekki áfram. Alla Leið spáir þessu áfram.

Svíþjóð Anna Bergendahl  - This is my life
Gaman að því að lagið heiti þessu flotta nafni hahaha. Mér finnst þetta batna eftir því sem ég heyri þetta oftar og finnst þetta bara þokkalegt eftir að hafa heyrt það svona 20 sinnum. Þessi vælutónn er samt aðeins að pirra mig, en lagið sjálft er ágætt.
Einkunn 6,5. Spá: Kemst áfram á dómnefndaratkvæði ef ekki á hinn veginn. Alla Leið spáir þessu ekki áfram, en voru alls ekki sammála.

Azerbijan Safura Alizadeh – Drip Drop
Ég er ekki að fýla þetta. Hún er sjálf tilgerðarleg. Þessi klósettrúllukjóll er sambland af kjólnum hennar Jóhönnu Guðrúnar og samlöndu Safuru, henni AySel sem var í þriðja sæti í fyrra. En það sem fer samt allra mest í pirrurnar á mér er viðlagið, þetta Drip Drop.
Einkunn 3. Spá: Kemst áfram. Alla Leið spáir þessu ekki áfram.

Úkraína Alyosha – Sweet People
Skánar eftir því sem ég heyri það oftar, en það er lagt frá því að ég fíli þetta. Sammála Guðrúnu með að og lagið og framsetningin fara ekki saman, sérstaklega ekki kjóllinn.
Einkunn 3. Spá: Kemst ekki áfram. Alla Leið spáir þessu ekki áfram. 

Holland Sieneke  - Ik ben verliefd (Sha la lie)
Já, Geirmundarsveiflan er “loksins” mætt í Eurovision, eða það mætti allavega halda það. Á maður að gefa Hollandi plús fyrir frumlegheit? Neibb, ég held að það sé ekki einu sinni hægt. Af einhverjum ástæðum dettur mér orðið barnalegt í hug.
Einkunn 2,5. Spá: Kemst ekki áfram. Alla leið spáir þessu áfram.

Rúmenía Paula Seling & Ovi – Playing with fire
Rúmenar stefna á að ná lagt í ár, senda “töff” lag, “töff” flytjendur og gera “töff” myndband. En mér finnst þetta allt saman hallærislegt. Og ég er búin að heyra í þeim live ...ekki gott. En lagið sjálft þ.e. stúdíóútgáfan, er samt sem áður góð og það er vel hægt að dansa við þetta.
Einkunn 6,5. Spá: Kemst áfram, en árangurinn á lokakvöldinu ekki eins og Rúmenar hefðu kosið. Alla leið spáir þessu ekki áfram, en Palli er sár því hann fílar þetta í tætlur.

Slóvenía Ansambel Roka Žlindre & Kalamari - Narodnozabavni rock 
Vaðið úr einu í annað með skelfilegum afleiðingum. Alltaf eins og skrattinn úr sauðalæknum sé lifnaður við og maður hrekkur við. Hreinlega heilsuspillandi að hlusta á þetta.
Einkunn 1. Spá: Kemst ekki áfram. Alla Leið spáir þessu ekki áfram.

Írland Niamh Kavanagh – I´ts for you
Alveg týpísk írsk ballaða. Þetta er ekkert slæmt lag og bara vel gert allt saman og ég er ánægð með viðhorf Niamh sem segist verða ánægð ef hún kemur þessu vel frá sér. En þetta er ekki minn tebolli frekar en allar hinar írsku ballöðurnar.
Einkunn 5. Spá: Ég er að pissa á mig úr spenningi hvernig þessu gengur, en ég ætla að spá þessu áfram eins og Alla Leið gengið.

Búgaría Miro - Angel si ti 
Dramatísk danstónlist frá Búlgaríu að vanda, þeir halda sig algjörlega þar. Þetta er fínasta danslag, en það vantar eitthvað punchline samt.
Einkunn 7. Spá: Kemst áfram.  

Kýpur Jon Lilygreen & The Islanders  - Life looks better in spring.
Æi, dálítið þunnt og klisjukennt finnst mér og ódýrt. Ekkert nýtt hér á ferðinni.
Einkunn 3. Spá: Kemst ekki áfram. Alla leið spáir því líka.

Króatía Feminnem - Lako je sve 
Mér finnst þetta tilgerðarlegt og leiðinlegt. Líkingin við Desperate Houswifes er góð. Og þeim gekk ekkert sérstaklega vel 2005. En mér finnst samt alltaf gaman þegar “gamlir” Eurovisionkeppendur snúa aftur.
Einkunn 3. Spá: Kemst ekki áfram, þó er ég ekki viss, gætu farið áfram á dómnefndaratkvæði. Króatía gerði það í fyrra. Alla leið spáir þessu áfram.

Georgía Lako je sve  - Shine
Hún þarf að syngja þetta virkilega vel live ef hún ætlar að hafa þetta áfram, því það eru betri ballöður í keppninni.
Einkunn 4. Spá: Kemst ekki áfram.

Tyrkland maNga  - We could be the same
Mér finnst þetta ekkert spes, en ég er búin að spá Rússlandi og Úkraínu út og ég get ekki sett Tyrkina út líka. Þetta er líka einhver fræg hljómsveit þótt ég hafi aldrei heyrt um hana áður.
Einkunn 3,5. Spá: Kemst áfram.
 

ÖRUGG Í ÚRSLIT 29. MAÍ

Spánn Daniel Diges - Algo pequeñito
Það er afskaplega jákvætt að Spánverjar veðji á móðurmálið, þeir eru svo skelfilegir í ensku. Og þetta er meira ekta en undanfarin ár, þeir eru komnir með smá metnað og það er virkilega jákvætt. En ég get ekki sagt að ég fíli þetta í tætlur neitt. Og Daniel er Eurovisionnörd, hann fær prik fyrir það.
Einkunn 5,5. Spá: Lendir neðarlega.

Noregur Didrik Solli-Tangen – My Heart is yours
Gubbuvæmið og lengi að byrja. Hann getur svosem sungið og ljótari menn hafa sést í Eurovision, en ég fíla þetta engan veginn. Didrik fer í flokk með Garðari Thór; bestur þegar hann þegir;)
Einkunn 3,5. Spá: Verður um miðja keppni.

Bretland Josh Dubovie – That sounds good to me
Það er eitthvað ekta breskt og pínu gamaldags við þetta, sem er bæði jákvætt og neikvætt. Svo bætast við áhrif frá Eurovisionlögunum frá Kýpur og Ísrael árið 2003 og útkoman er ekki góð. Og Bretar sjálfir eru ekki að fíla þetta og hálf skammast sín. Hver ákvað eiginlega að þetta færi áfram? Gordon Brown?
Einkunn 3. Spá: Lendir neðarlega. 

Frakkland Josh Dubovie - Allez! Ola! Olé! 
Fínasta danslag, en það vantar samt einhvern neista. Þetta lag á eftir að virka fínt í ræktinni. Og flott nafn á lagi.
Einkunn 7. Spá: Verður um miðja keppni.

Þýskaland Lena Meyer-Landrut – Satellite
Þetta lag er að skora hátt hjá mörgum, en ekki mér. Þjóðverjar eru þó á réttri leið, þetta eru betra lag en í fyrra og hittifyrra, sem voru algjör low point ár hjá þessu fyrrverandi stórveldi. En það er nú röddin hjá gellunni sem fer mest í taugarnar á mér og það vantar einhvern kraft í lagið, það er allt eins.
Einkunn 3. Spá: Endar neðan við miðju.

Og smá samantekt í lokin. Ef ég væri land og mætti greiða atkvæði, væru þau svona í dag. En þetta er með fyrirvara um breytingar út 29. maí:

Armenía 12 stig
Litháen 10 stig
Sviss 8 stig
Ísland 7 stig
Rúmenía 6 stig
Slóvakía 5 stig
Frakkland 4 stig
Albanía 3 stig
Belgía 2 stig
Eistland 1 stig 

Aðrir sem berjast um að komast inn á listann: Búlgaría, Svíþjóð, Serbía og etv Moldóva.


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2009 19:32:02 / bmwoman

Aðeins meira um Eurovision

Veit ekki hversu mikinn tíma ég hef til að skrifa um Eurovision, en hér eru nokkrar nördastaðreyndir um keppina í ár.

Noregur setti stigamet. Rústaði því reyndar eins og keppninni. Fékk 387 stig. Lordi átti gamla stigametið, 292 stig. Alexander náði þó ekki besta árangri í Eurovision ef miðað er við fengin stig deilt með mögulegum stigum. Alexander fékk 387 af 492 mögulegum stigum eða 78,7%. Anne-Marie David á ennþá metið fyrir Lúxemborg frá 1973 eða 80,6%.
Í fyrsta skipti á þessari öld (m.v. að hún byrji 2001) vann þjóð í Eurovision sem hefur unnið áður. Þetta er þriðji sigur Norðmanna sem nú hafa náð Ísraelsmönnum.
Portúgalir settu líka met, þó ekki eins gleðilegt. Þeir hafa nú beðið þjóða lengst eftir sigri eða í 45 ár. Finnar unnu keppnina þegar 45 ár voru liðin frá því þeir tóku fyrst þátt.
Og Tékkar slógu líka leiðindamet. Fyrsta þjóðin sem fær núll stig eftir að undankeppnirnar voru teknar upp árið 2004.
Og Jóhanna sló líka skemmtileg met eins og Alexander. Hún sló auðvitað íslenska stigametið, 218 stig, var áður 146 stig. Einnig náði hún hlutfallslega til fleiri þjóða 34 af 41 (teljum Ísland ekki með) sem er 82,9%. Selma var með 81,8% (18/22).
En ég held að þetta nýja fyrirkomulag með 50/50 sé sniðugt og réttlátt. Kemur í veg fyrir að keppnin fari í algjöra vitleysu, en fólkið hefur samt eitthvað að segja. Og miðað við úrslitin í ár gæti verið að þetta setji jafnvægi milli austurs og vesturs.
Annars komu úrslitin mér að mörgu leyti á óvart. Átti svosem von á Noregi inná topp tíu, en ekki Íslandi, Bretlandi og hvað þá Frakklandi! Ég stóð mig ágætlega í að spá fyrir um hverjir kæmust áfram í vikunni, en topp tíu listinn minn var allur í rugli.  

En aðalatriðið er samt að ÉG ER AÐ FARA TIL NOREGS Á NÆSTA ÁRI!!!!! Ákvað þetta í miðri stigagjöf. Begga frænka býr úti og ætlar að fara og fleiri eru ansi heitir. Ég er nú búin að safna fyrir þessu í fjögur ár og komin með þokkalegan sjóð og er nú þegar farin að setja aukinn kraft í söfnunina. Þetta verður geggjað!


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2009 08:04:00 / bmwoman

Eurovisionlögin 2009

Jæja góðir lesendur. Ég hafði þetta af! Hér eru comment og spá um lögin 42 sem keppa í Eurovision í ár. Góða skemmtun!

Andorra “La Teva Decisió” Susanne Georgi (Fyrri undankeppni)
Andorra sendir danska stelpu með nett popplag í ár. Þetta er svosem alveg þolanlegt lag, en ekkert meira en það. Fer innum annað og útum hitt eyrað eins og Palli orðaði það í Alla leið.
Einkunn 5. Spá: Kemst ekki áfram

Albanía “Carry me in your dreams” Kejsi Tola (Seinni undank)
Palli sýndi okkur hvernig hún syngur þetta live og þá fór ég að heillast og sjá fyrir mér að þetta atriði næði langt. Hún er hörkusöngkona og lagið bara alveg ágætt. En enskan fer ekkert í pirrurnar á mér eins og Alla leið liðinu.
Einkunn: 7. Spá: Jafnvel topp fimm

Armenía “Nor Par” Inga & Anush (Fyrri undank)
Skjótt skipast veður í lofti og það er einhvern veginn þannig með þetta lag að það getur verið fínt og öðruvísi en raddirnar í þeim systrum eru samt þannig að þær geta mjög auðveldlega farið í taugarnar á manni og live flutningurinn þeirra hefur mikið að segja.
Einkunn 6. Spá: Kemst áfram

Azerbaijan “Always” AySel Feat. Arash (Seinni undank)
Þetta er svosem alveg áægtis popplag, en þau taka sig ekki vel út live.
Einkunn: 6. Spá: Komast áfram

Belgía “Copycat” Copycat (Fyrri undankeppni)
Alla leið liðið slátraði þessu lagi. En ég segi fyrir mig að ef ekkert væri verra en þetta í ár væri þetta besta Eurovisionkeppni ever. Þetta er bara ágætis danslag og ég trúi því að það fái nokkur stig frá Íslandi. Ef ekki er það Páli Óskari að kenna. Hann virðist hafa áhrif á landann, sbr. Sebastian Tellier hinn franska í fyrra.
Einkunn 6,5. Spá: Kemst ekki áfram

Bosnía-Herzegóvina “Bistra Voda” Regina (Fyrri undank)
Mútta og aðrar húsmæður víða um Evrópu eiga eftir að fíla þetta í tætlur og þetta er svosem ágætis lag, fallegt og þjóðlegt.
Einkunn: 6,5. Spá: Kemst áfram.

Bretland “My Time” Jade Ewen (beint í úrslit)
Mér er sama þótt Andrew Lloyd Webber eigi lagið, honum hefur oft tekist betur upp. Leiðinlegt lag
Einkunn 3. Spá: Lendir mjög neðarlega

Búlgaría “Illusion” Krassimir Avramov (Fyrri undank)
Dramatík.is! Palli taldi upp ýmsa dramatíska og stolna punkta úr myndbandinu en það á ekkert síður við um lagið sjálft. Dágóður skammtur af Sakis Rouvas og Enique Iglesias.
Einkunn: 5,5. Spá: Kemst áfram

Danmörk “Believe Again” Niels Brinck (Seinni undank)
Ég fékk netta Ronan Keating velgju þegar ég heyrði þetta lag í fyrsta skiptið. Komst svo að því að það er ekki skrýtið, þar sem hann samdi lagið! Ég er ekki enn búin að fyrirgefa kallinum fyrir að taka eigið lag í fimmtíu ára afmæli Eurovision. Ég er hrædd um að Danir hafi kastað perlum fyrir svín eða tólf stigum frá Íslandi fyrir sex stig frá Írlandi. Þeir hefðu frekar átt að senda Heru.
Einkunn 4. Spá: Kemst ekki áfram.

Eistland “Rändajad” Urban Sinphony (Seinni undank)
Ekki skemmtilegt, ekki leiðinlegt, en án efa öðruvísi. Live flutningur skiptir miklu máli.
Einkunn 6. Spá: Kemst áfram

Finnland “Lose Control” Waldo's People (Fyrri undank)
Þetta er svosem alveg ágætis lag, fínasta lag til að hlusta á í ræktinni til dæmis og myndbandið öðruvísi. Þetta á eftir að ná vinsældum á Norðurlöndunum. En það sem ég hef heyrt af live flutningi er ekki gott, svo það er frekar erfitt að spá...
Einkunn: 6,5. Spá: Kemst ekki áfram

Frakkland “Et S'il Fallait Le Faire “Patricia Kaas (beint í úrslit)
Þetta lag hefði allt eins getað verið framlag Frakka til keppninnar árið 1960 og mér finnst þetta svolítið sjarmerandi. En ég er hrædd um að Evrópskur almúgi árið 2009 kunni ekki að meta þetta. Hins vegar hafa dómnefndir 50% vægi á úrslitakvöldinu og það gæti gefið Frökkum einhver stig.
Einkunn 6. Spá: Lendir neðarlega

Grikkland “This is our night” Sakis Rouvas (Seinni undank)
Sakis tók þátt í keppninni með lagið Shake it árið 2004 og lenti í 3. sæti. Hann ætlar sér að toppa það í ár og það mun takast. Lagið er lélegt. Ég heyrði ein þrjú lög sem komu til greina en Grikkir höfðu það nú ekki einu sinni af að velja skásta lagið fyrir hann. Og hann klikkaði einu sinni á fyrstu æfingunni. En það skiptir ekki máli. Fall er fararheill í þessu tilviki og ég spái Sakis yfirburðasigri í ár. Maður skellir sér kannski til Aþenu á næsta ári....
Einkunn 4. Spá: Sigurvegarinn 2009

Holland “Shine” The Toppers (seinni undank)
Ég byrjaði á því á síðasta Eurovisionkvöldi að vera með hallærisleg Eurovisionatriði og láta liðið velja það hallærislegasta. Þá hugsaði ég með mér að það yrði að koma einhver kandídat fyrir það í keppninni í ár. Og ég fékk ósk mína uppfyllta. Miðaldra karlmenn sem klæða sig eins og tvítugir hommar er ekki að gera sig.
Einkunn 3. Spá: Kemst ekki áfram.

Hvíta-Rússland “Eyes that never lie” Petr Elfimov (Fyrri undank)
Þetta lag heillaði mig strax þegar ég heyrði viðlagið í fyrsta skipti. Ég viðurkenni að erindin minna dáltíð á Hasta la Vista hörmungina í fyrra við fyrstu hlustun. En eftir að vera búin að hlusta á lagið svona 60 sinnum er það alveg hætt að trufla. Hárið á gaurnum er heldur ekkert spes, en skárra núna en í myndbandinu og ég viðurkenni alveg að hann minnir á skautadansarann í fyrra (sem vann by the way) En mér finnst Petr hörkusöngvari, líka live og lagið er mjög gott.
Einkunn 9,5. Spá: Kemst áfram. Topp tíu

Írland “Et Cetera”  Sinéad Mulvey & Black Daisy (Seinni undank)
Et Cetera segir eiginlega allt sem segja þarf; endalaus leiðindi. Útþynnt stelpupopp.
Einkunn 2. Spá: Kemst ekki áfram

Ísland “Is it true” Jóhanna Guðrún (Fyrri undank)
Jóhanna syngur vel, en hefur ekki næga útgeislun. Og lagið er bara lala.
Einkunn 6 Spá: Tel að það sama gildi um handboltalandsliðið og Eurovision; væntingar í lágmarki – árangur í hámarki og þess vegna kemst hún áfram og endar í kringum 16. sætið í aðalkeppninni

Ísrael “There must be another way” Noa & Mira Awad (fyrri undank)
Alveg ágætis númer finnst mér og góður boðskapur sem á vel heima hér. Hins vegar eru Ísraelar ekki vinsælir þessa dagana.
Einkunn 6,5. Spá: Kemst ekki áfram

Króatía “Lijepa Tena” Igor Cukrov Feat. Andrea (Seinni undank)
Alveg týpískt króatískt atriði sem er svosem lítið hægt að setja út á nema þetta er drepleiðinlegt
Einkunn 4 Spá: Kemst áfram

Kýpur “Firefly” Christina Metaxa (seinni undank)
Eins og Alla leið liðið kom inn á er stúdíóútgáfan meiraðsegja fölsk!
Einkunn 1 Spá: Kýpverjar eru heppnir að vera með Grikkjum í riðli í ár og fá því ekki núll stig.

Lettland “Probka” Intars Busulis (seinni undank)
Alveg afskaplega þreytandi númer þetta, þótt manni finnst hann vera að öskra “Vodka” inná milli, það er kannski viljandi...
Einkunn 1. Spá: Kemst ekki áfram

Litháen “Love” Sasha Son (Seinni undank)
Útvarpslag. Það má alveg hlusta á þetta en þetta getur líka algjörega farið framhjá manni og það vantar í það alla sérstöðu til að það geri eitthvað í svona keppni
Einkunn 5. Spá: Kemst ekki áfram.

Makedónía “Nešto što kje ostane” Next Time (Fyrri undank)
Söngvarinn líkir sér við Bon Jovi sem er hreinasta móðgun við Joviinn. Hér er um að ræða enn eitt þreytandi lagið frá Makedóníu.
Einkunn 3. Spá: Komast síðastir áfram og enda neðarlega í aðalkeppninni

Malta “What if we” Chiara (Fyrri undank)
Chiara hefur tvisvar keppt fyrir Möltu í Eurovision. Varð í 3. sæti 1998 og 2. sæti 2005 og með sömu þróun ætti hún að vinna í ár. Það væri ekki leiðinlegt, enda er Malta draumalandið mitt til að fara á Eurovision. En ég er hrædd um að það takist ekki og það megi fyrst og fremst rekja til þess að lagið er ekki nógu gott. Hún er hins vegar hörkusöngkona og með þeim betri sem hafa keppt í þessari keppni. Hefði átt að vinna 2005.
Einkunn 7. Spá: kemst áfram og nær inná topp tíu

Moldóva “Hora din Moldova” Nelly Ciobanu (Seinni undank)
Moldóvar hafa greinilega ekki kynnt sér íslenskuna neitt sérlega vel áður en þeir völdu nafn á lagið. En ég segi eins og Reynir, það er eitthvað sem pirrar mig við þetta atriði, þótt það sé annars svosem í lagi.
Einkunn: 5 Spá: Kemst áfram

Noregur “Fairytale” Alexander Rybak (Seinni undank)
Þetta lag er langefst í könnunum Eurovisionnördana á esctoday og margir Íslendingar eru líka að missa sig yfir þessu lagi. Norðmenn eru nú þriðja snarbjárlaðasta Eurovisionþjóðin eftir því sem ég kemst næst og þar eru núna gerðar miklar væntingar til lagsins og ég held bara alltof miklar. En þetta er svosem ágætis lag og má dansa við það, en strákurinn er svolítið barnalegur.
Einkunn 7. Spá: Kemst áfram og endar í sæti 6-10 í aðalkeppninni.

Portúgal “Todas As Ruas Do Amor” Flor-De-Lis (Fyrri undank)
Ef Portúgalir vinna ekki í ár slá þeir nýtt met. Finnar unnu þegar 45 voru liðin frá því þeir tóku fyrst þátt og í ár eru 45 ár frá því Portúgalir tóku fyrst þátt og ég er nú hrædd um að þeir slái metið. Finnar og Portúgalir eiga það líka sameiginlegt að besti árangur þeirra á þessum tímapunkti var 6. sæti.  En að mínu mati eru Portúgalir líka, eins og Finnar árið 2006 með sitt besta framlag frá upphafi til keppninnar í ár. Alveg hreint yndislegt og maður liftist allur upp við að heyra þetta. Það er svo áreynslulaust og því fylgir svo mikil gleði og afslöppun. Einmitt það sem við þurfum á að halda á þessum s´íðustu og verstu. Ég yrði því líka mjög hamingjusöm ef þeir ynnu.
Einkunn 9,5. Spá: Kemst áfram. Slefar inná topp tíu.

Pólland “I Don't Wanna Leave” Lidia Kopania (Seinni undank)
Við getum þakkað fyrir að hún Lidia skuli ekki vera með Jóhönnu okkar í riðli, því þær eru keimlíkar og myndböndin þeirra alveg skelfilega lík. Þetta er líka svona lala lag, en ekkert meira en það
Einkunn 6. Spá: Kemst áfram

Rúmenía “The Balkan Girls” Elena Gheorghe (Fyrri undank)
Alla leið liðið var nú ekki að fíla þetta, en ég geri það og er nú þegar búin að taka nokkur létt dansspor við lagið. Grípandi danslag.
Einkunn 8. Spá: Topp fimm.

Rússland “Mamo” Anastasya Prihodko (beint í úrslit)
Já Rússar eru á heimavelli í ár. Þetta er nú ekkert spes atriði finnst mér, en þeir eiga marga góða granna
Einkunn 4. Spá: Nær uppfyrir miðju

Serbía “Cipela” Marko Kon & Milan Nikolić (Seinni fork)
Ekki þykir mér mikið til koma.
Einkunn 4. Spá: Kemst áfram

Slóvakía “Let' tmou” Kamil Mikulčík & Nela Pocisková (Seinni fork)
Zzzzzzz Jæja nú er góður tími til að fá sér blund
Einkunn 2. Spá: Kemst ekki áfram

Slóvanía “Love Symphony” Quartissimo Feat. Martina Majerle (Seinni fork)
Það er margt að hérna; það líður alltof langur tími þar til hún fer að syngja, hún er að herma eftir Ani Lorak og hún er skelfilega tilgerðarleg.
Einkunn 2. Spá: Kemst ekki áfram

Svartfjallaland “Just get out of my life” Andrea (Fyrri undank)
Svartfellingar hafa ekki skorað feitt í Eurovision síðan þeir fóru að keppa einir og sér. Þetta er reyndar þeirra besta framlag til keppninnar til þessa og alveg ágætt popplag, en ég held að Evrópa hafni þeim samt einu sinni enn.
Einkunn 6. Spá: Kemst ekki áfram

Spánn La Noc”he Es Para Mi” Soraya (beint í úrslit)
Ekki það að það er boðið uppá margt verra en þetta í ár, en þetta fellur í fjöldann. Og hvað með að Spánverjar mættu velja sér númer hvað þeir eru? Síðan hvenær er það leyfilegt og af hverju þeir??!!?
Einkunn 3. Spá: Lendir neðarlega.

Sviss “The Highest Hights” Lovebugs (Fyrri undank)
Mér leist nú ekkert á blikuna þegar ég sá myndbandið í fyrsta skiptið. Sofandi söngvari, Curt Cobain look alike með hormottu. En eftir að hafa hlustað á lagið án þess að þurfa að horfa á hann líst með mun betur á. Fínasta lag, en ég er hrædd um að það nái ekki langt, þar sem þriðjudagsriðillinn er mun sterkari en fimmtudags.
Einkunn 7,5 Spá: Kemst ekki áfram.

Svíþjóð “La Voix” Malena Ernman (Fyrri undank)
Það er svosem ekkert útá lagið eða laglínuna að setja. En þessi “óperusöngkona” eða hvað þetta er... Kona? Karlmaður? Kynskiptingur? Lítaaðgerðafíkill? Veit ekki, en viðkomandi er allavega mjög creepy og ég veit ekki hvernig þetta kemur út live.
Einkunn 4. Spá: Kemst ekki áfram

Tékkland “Aven Romale” Gypsy.cz (fyrri forkeppni)
Tékkum hefur gengið afleitlega í þessari keppni og það verður held ég engin undantekning í ár. Afskaplega þreytandi lag og ég held að Evrópa nái ekki brandaranum.
Einkunn 2. Spá: Kemst ekki áfram

Tyrkland. “Düm Tek Tek” Hadise (Fyrri fork)
Gott danslag og ekta lag sem nær langt í þessari keppni
Einkunn 8,5. Spá: Ég ætla að gerast svo djörf að spá þeim 2. sætinu

Ungverjaland “Tánclépés” Zoli Ádok (Seinni undankeppni)
Þreytandi og pirrandi. Er ég ekki farin að hljóma eins og gömul plata? En þetta er nú því miður staðreyndin í ár. Alltof mörg lög sem maður vill helst ekki heyra aftur.
Einkunn 2. Spá: Kemst ekki áfram.

Úkraína “Be My Valentine” (Seinni undank)
Já eins og Dr. Gunni komst að orði er klámvæðingin komin til Úkraínu. Atriðið í fyrra fór svosem langt í þá átt, en þetta slær nú flestu við. Mér finnst þetta ömurlegt og á ekki heima í svona keppni sem börn og gamalmenni horfa á.
Einkunn 2. Spá. Kemst áfram og ég er hrædd um að topp tíu sé staðreynd.

Þýskaland “Miss Kiss Kiss Bang” Alex Swings! Oscar Sings! (Beint í úrslit)
Mér finnst gaurinn tilgerðin ein og hef heyrt betri swinglög
Einkunn 4. Spá: Lendir neðarlega

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.05.2009 18:47:03 / bmwoman

Eurovisionupphitun

Já hér hefur ekkert gerst langa lengi, enda lítið að frétta. Mín alltaf að vinna og það er auðvitað hið besta mál, en ég hef lítið getað sinnt mínum hugðarefnum eins og Eurovison og bjórdrykkju, því miður. Ég fékk þó sendingu um daginn, 48 Eurovisionkeppnir á DVD 1956-2003 og er byrjuð að horfa. Svo er ég að reyna að hlusta á nýju lögin og stefni á að setja inn comment um hvert lag og spá hérna inn, hvenær sem það verður nú. Ég hef viku. En á meðan við bíðum eftir því, þá fann ég hérna gamla punkta um Draumaeurovision, skrifaðir árið 2008 hugsa ég. Má etv endurskoða, en látum þetta flakka hér:

Austurríki: Austurríkismenn hafa verið spældir undanfarið yfir árángrinum og stundum neitað að vera með. Ef hetjan þeirra og baráttumaðurinn Udo Jörgens er enn á lífi er ekki spurning um að senda hann. Ef ekki er Alf Pojer fyrsti varamaður. Hann myndi hrista upp í liðinu!
Azerbijan: Azerar hafa nú ekki nema um eitt að velja; Elnur og Samir. Velkomnir aftur!
Belgía: Belgía sendir auðvitað heljuna sína, Söndru Kim. Mörgum finnst hún reyndar óþekkjanleg, en það er bara betra.
Bosnía-Herzegóvína: Fær heiðurinn af því að vera með lag eftir Zejlko Josimovic. Hara Mata Hari flytja aftur.
Bretland: Cliff Richard tapaði með einu stigi ´68 og varð númer þrjú fimm árum síðar. Það væri gaman að sjá hvernig honum myndi vegna núna.
Danmörk: Olsen bræður mega eiga það að þeir hafa reynt að koma með kombakk í Eurovision, en Danir hafa hafnað þeim. Auðvitað yrði atriðið eins; sama lag og sömu föt, en það er samt viss klassi yfir því.
Eistland: Eistar verða að senda sína undarlegu sigurvegara, Tanel Padar og Dave Benton.
Finnland: Lordi eru auðvitað þeirra hetjur, en alltof miklir töffarar til að láta sjá sig aftur í Eurovision. Því senda þeir Monicu Aspelund og háu tónana aftur.
Frakkland: Þeirra síðasti sigurvegari, Marie Myriam vann fyrir þrjátíu árum. Kella er enn í stuði, senda hana aftur.
Grikkland: Grikkir senda að sjálfsögðu sænsku hetjuna sína Helenu.
Holland: Teach-In eru að mínu mati einu hollensku sigurvegararnir sem áttu skilið að vinna. Það yrði líka gaman að sjá múnderinguna á Getty Caspers og co.
Hvíta-Rússland: Hvít-Rússar eiga eins og fleiri bara eina hetju og því verðum við að hafa það þótt Koldun, brúnkukremið og Colgate-tennurnar mæti aftur.
Írland: Að sjálfsögðu á eyjan græna að senda Eurovisionkónginn. Hann getur reynt að toppa sjálfan sig, það er enginn búinn að ná honum ennþá.
Ítalía: Ítalía á að hætta í þessari fýlu og senda hetjuna þeirra og sameinaða vin minn Toto Cutugno með skol í hárinu, takk.
Ísrael: Dana International mætir að sjálfsögðu og minnir okkur á að þetta er Eurovision.
Lettland: Þótt Marie N sé ágæt finnst mér komið nóg af Maríum í þessari keppni og vil sjá Reynars og Brainstorm með brjálað kombakk!
Litháen: Litháen hefur bara einu sinni náð topp 10 með LT united, We are the winners. Þeir yrðu því miður að mæta aftur.
Lúxemborg: Plastic Bertrand var á undan sínum samtíma hvað varðar vindvélina. Það væri virkilega gaman að sjá hann með nútímavindvél í botni.
Króatía: Króatía getur undirstrikað það að þau hafa í raun og veru unnið Eurovision með því að senda Emiliu Kokic sem vann fyrir Júgóslavíu þegar við fengum núll stigin. Líka smá sílíkonmótvægi við Svíana.
Kýpur: Þar sem Anna Vissi er búin að koma með kombakk fyrir Grikkland og Evidirki líka vil ég senda Lisu Andreas.
Malta: Innst inni vil ég ekki sjá Fabrizio einu sinni enn. Chiara er málið. 3. sæti ´98 og 2. sæti 2005. Hvað gerir hún nú?
Makedónía: Þetta er Drauma-Eurovision. Því fær Makedónía ekki að vera með.
Moldóva. Zdob si Zdub aftur og ömmuna með, ekki spurning!
Noregur: Bobbysokkurnar eru báðar búnar að koma með kombakk svo ég vil fá meira glysrokk frá Wig Wam.
Pólland: Pólverjar senda Ich Troje enn og aftur. Hvernig verður hárið á kallinum á litinn núna? Hann á t.d. fjólubláan eftir.
Rúmenía: Mihai, við þurfum ekkert að ræða það.
Rússland: Fleiri stig, færri föt hefur verið þróunin hjá Dima. Þannig að ég er mjög spennt fyrir því að sjá hann einu sinni enn.
Serbía: Serbía sendir að sjálfsögðu Mariu Serifovic með eitthvað kvenlegt atriði – eða þannig.
Spánn: Ég vil sjá spænskan dúett; Salome í fuglahræðudressinu og Julio Iglesias. Hann er vonandi kominn með falskar.
Sviss: Sviss sendir að sjálfsögðu drottinguna sjálfa, Lys Assia. Celine Dion getur verið í bakröddum.
Svíþjóð: Ég nenni ekki einu sinni að ræða um að koma ABBA saman. Og sílíkongellurnar eru báðar búnar að koma með kombakk. Ég er hrædd um að Svíarnir myndu senda Lenu Philippson í svona kombakk, en ég vil þá frekar sjá Richard Herrey.
Ungverjaland: Þeir hafa nú ekki úr mörgu að moða. Magdi Rúza, ekki spurning. Ég vona þó að hún skilji ferðatöskuna eftir inná hótelherbergi í þetta skiptið.
Tyrkland: Þrátt fyrir sterk rök fyrir því að senda Sertab eða Mor ve Ötesi vil ég sjá Locomotiv í trylltum dansi!
Úkraína: Það er bara tímaspursmál hvenær Úkraína vinnur aftur. En ég vil sjá Ruslönu brjóta gólfið aftur!
Þýskaland: Þýskaland hefur bara misst af einni keppni, en bara einu sinni unnið. Það er hún Nicole sem er hetjan þeirra. Hún hefur lítið breyst, ekki spurning um að senda hana aftur! Ég held hún hljóti að komast í sama kjólinn, hvað þá annað!

Ísland: Eiki Hauks, Selma, Sigga, Grétar, Stebbi..... Allir búnir að koma með kombakk oft og mörgum sinnum! Miðað við árangur eigum við að senda Birgittu. En ef við ætlum að eiga sjéns sendum við að sjálfsögðu PÁL ÓSKAR!!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.03.2009 19:39:26 / bmwoman

Hvernig var ferða- og "flutninga" helgin

Já það var stuð um helgina jafnvel þótt ég hafi ekki farið á Eurobandið. Byrjaði helgina á að keyra Öddu Sig útá flugvöll. Gamla hafði svo búið til yndislega humarsúpu sem við fengum okkur áður en við skelltum okkur til Dalvíkur. Byrjuðum á að skreppa aðeins til Frænku og Danna og fengum kaffi og pönnsur og tókum gott og skemmtilegt spjall. Því næst lá leiðin á Heimsmeistaramótið í Brús á Rimum í Svarfaðardal. Þetta var bara mjög gaman, við lentum á skemmtilegum mótspilurum hvað eftir annað. Byrjuðum á að spila við fyrrum heimsmeistara sem fengu bronsið í ár og fengum góð ráð varðandi spilamennskuna. Það kom sér nokkuð vel. Við urðum aðeins fyrir ofan miðju, sem er akkúrat eins og við viljum hafa það. Vorum aldrei klóraðar og fengum að klóra tvisvar, þar af fín hjón úr höfuðborginni í annað skipti. Ég lét nokkra beiða upp, en beiddi sjálf bara upp fyrir heitasta piparsveininum í sveitinni hehehe. En þetta var virkilega gaman, mikið hlegið og gert grín.
Á laugardagsmorgun var manni svo ekki til lengunnar boðið. Fór á fætur fyrir allar aldir og út á flugvöll. Já starfsdagur bankans með pompi og prakt. Það var bara virkilega gaman. Okkur var skipt í umræðuhópa. Ég var hæst ánægð með mitt umræðuefni, hópstjórann og hópinn minn allan þótt þar leyndust engir hot piparsveinar. Ég skaust svo í Smáralind milli atriða sem var meira bara heilsubótarganga en verslunarferð sem er kannski bara ágætt. En það var svo þónokkuð stuð í kokteilnum á eftir og eiginlega mesta stuðið áður en hann byrjaði.... Nú, við fórum svo heim aftur í brjáluðu roki og áttum von á að flugtakið yrði svaðallegt, en reyndist með því mýkra sem ég hef kynnst. Það var hins vegar hristingur í aðflugi á Króknum þar sem við þurftum að millilenda og eins í flugtaki þar og aðflugi hér. En fólk er nú ekki sammála um hversu hristingurinn var mikill, enda var ástand fólks mjög mismunandi. Það var svo partý hjá minni þegar heim var komið. Fólk stoppaði mislengi eins og gengur og gerist. En ég verð nú að segja eins og er að ég hef vitað skemmtilegri partý. Umræðuefnin voru líka ekki þau skemmtilegustu; hvað er guð, pólitík og ýmislegt félagslegt sem fór allt öfuga leið. Ég nennti svo ekki í bæinn eftir þetta allt saman þar sem Jórunn og Jónas ætluðu ekki á Eurobandið og mín kannski bara komin með nóg.
Auk þess var ég brjóstgóð, með brjóstvit og brjóstbirtu um helgina og var “saved by the bell” með snilldarhætti. Já hér er allt á rósamáli meira og minna og varla orð að marka þennan pistil og bullið heldur áfram. Þetta tek ég beint af korktöflunni fyrir ofan tölvuna: “Frekari áfengisneysla veldur lélegri samhæfingu vöðva; gangur verður reikull, röddin drafandi og samhæfing augnanna bregst (menn sjá tvöfalt)”

Og lagalisti helgarinnar, allur staðartengdur:
Bjarnastaðabeljurnar
Frystikistulagið (Húsavík)
Blessuð sértu sveitin mín (hvar sem hún er nú)
Nú er úti Norðanvindur (og Norðurland og heimilið horfið- enda er það kannski ekkert á Norðurlandi)
Dalvíkin er drauma blá
Krókurinn (hér hvar og hvenær sem er)
Við Gróttu
Grand Hótel (já, það er til, með KK)
-          og síðast en ekki síst Heim í BúðardalJ
-          vantaði bara Shakin´ Stevens í hópinn hehehe
Það má svo krydda þetta með M&M, neftóbaki og Bíldudals grænum baunum, en Bíldudalur er á Suðurlandi, rétt hjá Höfn í Hornafirði eftir því sem næst verður komist.

Annars er ég líka búin að updeita Facebook-bloggið hér fyrir neðan. Næstum allt orðið breytt á hálfum mánuði!


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2009 19:24:11 / bmwoman

Facebook-blogg

Það gerðist ekkert merkilegt um helgina og þar sem allt snýst um Facebook þessa dagana og bloggið er ekki lengur eins heitt er hérna smá Facebook-blogg sem er aðallega staðreyndir vini mína á Facebook

  • Tvöhundruð þrjátíu og fimm vini á ég núna þar af 66 ættingjar (relatives). Til ættingja teljast skáfrænkur og -frændur og makar náinna ættingja minna.
    Yngsti vinur minn er fædd 1997 (Særún). Elsti vinur minn er auðvitað afi (Engilbert), fæddur 1927. Sá vinur sem er næst mér í aldri er einum degi yngri en ég (Habbý).
  • Flestir vinir mínir eru auðvitað fæddir á því frábæra ári 1977, alls 37 snillingar eins og staðan er núna. Öll hafa þau verið með mér í bekk (hinn bekkurinn í Glerárskóla  og fög í VMA meðtalin) nema fimm (Perla, Sigfús, Álfheiður, Inga og Habbý).
  • Enginn vinur minn á sama afmælisdag og ég, en ég á tuttugu Sporðdrekavini.
  • Vinir mínir hafa alls þrjú móðurmál (íslenska, sænska, enska (Ástralía)).
  • Tengsl við vini mína eru allavega. Til dæmis á ég vini sem hafa passað mig (Júlli) og vini sem ég hef passað (Jón Gísli, Ólöf Heiða, Lára Jóna) og passað fyrir (Alla). Þó ég telji gamla settið og Öddu syss ekki með!
  • Stærsti systkinahópurinn minn á Fésinu eru núna Mýrarsystkinin, gamli og co.
  • Flestir vinir mínir eiga afmæli í maí (“verslunarmannahelgarbörnin”) en flestir vinir mínir eiga afmæli 30. júlí, fimm manns (Sabba, Begga, Egill, Katrín og Magga).
  • Næstflestir eða fjórir vinir mínir eiga svo afmæli á gamlársdag. Þrjú þeirra eru systkini og þar af eru einu vinir mínir sem eru tvíburar (Börkur og Birkir, Edda systir þeirra og Bjössi sem er ekkert skyldur þeim).
  • Tveir vinir mínir heita nákvæmlega sama nafni á Facebook: Kristín Guðmundsdóttir. Þegar þær skrifa eitthvað í status updates og ég reyni að giska á hvor þeirra það sé, hef ég ALLTAF rangt fyrir mér!
  • Flesta sameiginlega vini á ég með gömlu, 84, hvorki meira né minna. Adda syss í öðru sæti með 77. Júlli kemur næst með 55 og Jórunn svo með 49.
    Facebook-vinur minn sem býr næst mér býr í sömu götu, kannski 200 metra í burtu (Ragnar). Sá vinur minn sem er fjærst mér býr í Ástralíu (Nina).
  • Sá vinur minn sem er lengst síðan ég hef hitt er líklega Íris frænka mín sem býr á Selfossi. Ég hitti hana síðast 1987 held ég svei mér þá. Sá vinur sem er styst síðan ég hitti er Gunna vinnufélagi minn.
  • Átján pör eru vinir mínir á Facebook og flest hafa þau “opinberað samband sitt” á Fésinu. Þeim mun lengur sem þau hafa verið saman, þeim mun fyndnara:D
  • Tveir vinir mínir eru húmoristar og segjast vera í opnu sambandi með einhverjum af sama kyni, líklega góðum vini eða vinkonu. Ég ætti kannski að reyna að koma þeim saman hehehe.
  • Og svo það sem öllum langar að vita: Fjöldi vina minna sem er karlkyns, ekki skyldur mér, á lausu, fyrir hitt kynið og ekki undir lögaldri (ég miða við aldur bróður míns, þ.e. fæddir fyrir 7. maí 1981) er eftir því sem ég kemst næst sex manns (og það er viljandi gert að láta nöfnin ekki fylgja).

Ég hvet aðra til að gera eitthvað svona svipað – þetta er nýtt klukk


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.02.2009 20:40:28 / bmwoman

Hvernig var konu(dags)helgin

Já heldur betur viðburðarrík helgi að baki og bara bráðnauðsynlegt að skella inn pistli. Þarf eiginlega að byrja þetta á fimmtudagskvöldinu. Við vinnufélagarnir skelltum okkur í leikhús á Fúlar á móti. Það var bara þónokkuð stuð og margir góðir punktar þótt annað hafi verið verra. Mér fannst ég kannast við fullt af hlutum þarna – hjá konum öðrum og mun eldri en ég að sjálfsögðu.
Á föstudagskvöldið var svo dekurkvöld hjá okkur skvísunum í bankanum í tilefni konudagsins. Herlegheitin voru haldin heima hjá Röggu og hún hafði beðið mig um að sjá um tónlistina. Svanhildur náði svo í mig og meðal farangurs voru því hátalarar og hvítvínsflaska. Þegar Svanhildur sá þetta í myrkrinu hélt hún að ég væri með tvær kippur af bjór og eina vodkaflösku og hélt að ég ætlaði að taka svona svakalega á því. En kvöldið okkar var æði. Kósýheitin í fyrirrúmi. Við áttum allar að mæta með hatta og slæður, en sumar okkar klikkuðu reyndar á því. Það var boðið uppá veitingar eins og í meðalfermingarveislu og svo tók við andlitshreinsun og förðun alveg nokkrum sinnum. Svo var farið í leiki og fleira skemmtilegt. Þetta var virkilega gaman og mikið hlegið. Strákarnir höfðu verið á fundum alla vikuna að skipulegga karlakvöld eftir að þeir fréttu af okkar áformum. Þeir þögðu hins vegar alveg yfir sínu og var ekkert hægt að fá uppúr þeim, en margar kenningar í gangi. Við höfðum sent þeim mynd af okkur snemma kvölds, en fengum engin svör. Ég átti von á að þeir myndu birtast svona ellefu, hálf tólf, en ekkert heyrðist frá karlpeningnum okkar. Það var ekki fyrr en við vorum rétt að fara að leggja af stað heim að síminn minn byrjar að gaula. Það er Halldór, en það var ekkert hægt að heyra hvað hann var að segja, það var svo mikill hávaði hjá honum. Hann hringir svo nokkrum sinnum enn og ég fæ það á endanum á hreint að hann er á Kaffinu. Þá erum við Svanhildur á rúntinum, búnar að skutla Júlíu og Heiðu Pé heim og ákváðum að tékka á Dóra hvort honum vantaði kannski bara far heim. Ég skundaði því inná Kaffið, ómáluð eftir allar andlitssnyrtingarnar og auk þess hárið í tómu þar sem við höfðum verið með hárband í öllum snyrtingunum. Á Kaffinu fann ég strákana; Dóra, Jónas, Inga, Egil og Boga. Þeir sáu ekkert athugavert við útlitið á mér og heimtuðu að ég djammaði með þeim. Og Halldór var alls ekki á þeim buxunum að fara heim. Það varð því úr að Halldór, Ingi og Jónas tróðust allir með mér inn í bílinn hennar Svanhildar. Hún keyrði mig heim með allt draslið, ég sparslaði í hrukkurnar, renndi maskaranum í gegn og sléttaði hárið með Inga og Halldór dansandi á baðgólfinu og fram í forstofu. Jónas og Svanhildur nutu "ferska loftsins" á meðan. Svanhildur skutlaði okkur svo á Kaffið, en Egill og Bogi höfðu laumast heim í millitíðinni. Það var bara ansi troðið á Kaffinu og mikill atgangur í mínum mönnum. Ég var alltaf að reyna að fá það uppúr þeim hvernig þeir höfðu eytt kvöldinu, en það gekk ekkert sérstaklega vel. En svo kom að borðinu okkar maður sem var í gleðskapnum og sagði mér alla sólarsöguna. Þeir höfðu þá bara verið í heimahúsi að drekka ýmislegt í sterkari kantinum.
Fór svo í mat í Lönguhlíðina á laugardagskvöldið þar sem hele familien var að vanda. Þær systur að ræða um Öskudagsbúninga og fleira sniðugt. Ósk kom svo í heimsókn til mín eftir það, við horfðum á slatta af Friendsþáttum, ræddum gamla góða tíma og ég kláraði hvítvínið frá því kvöldið áður og eitthvað af öli líka er ég hrædd um.
Maður var svo hálf þunglyndur á konudaginn. Fór inná Fésbókina og þar voru kellingarnar að tjá sig um hvað kallinn þeirra væri góður við þær. Sumar fóru í rómantískan dinner. Ein fékk heimabakaða kleinuhringi og rúnnstykki í morgunmat. Ein fékk humar í hádeginu. Önnur fór í dekur í Laugum. Og þetta eru allt sönn dæmi, tekin beint af status updates á Fésinu. Ég var orðin hálf grátandi og hugsaði með mér af hverju ég ætti ekki svona kall. Svo rann það upp fyrir mér að ég þyrfti þá að sitja uppi með hann hina 364 dagana á árinu og mér leist nú ekki á það. Ég fór því bara til Öddu Sig og eyddi deginum og fram á kvöld fyrir framan imbann hjá henni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 19:11:23 / bmwoman

Hvernig var "Is it true" helgin

Ég kemst varla upp með annað en að blogga um liðna helgi. Flöskudagurinn þrettándi, Valdísardagur og Eurovision.... Það var Idolpartý í Lönguhlíðinni á föstudaginn. Þónokkuð stuð. Fór svo í Hrafnagils og við Addus fengum okkur einn öl og horfðum á Útsvarið á video og grétum yfir ósigri Akureyrarliðsins ....eða já.
Dröslaðist í ræktina á laugardagsmorguninn. Mér er að verða álíka eðilslægt að rífa mig upp fyrir allar aldir á morgnanna og fara í ræktina eins og að fá mér einn öl. Fór svo í kaffi til Öddu áður en ég fór í Lönguhlíðina í pizzugerð. Kristín Lilja frænka var í heimsókn norðan heiða og var mætt manna fyrst í Eurovisionpartýið. En það fjölgaði smám saman og allt í allt mættu nítján manns (Kormákur meðtalinn). Það var auðvitað talsvert stuð og mikið gaman. Úrslitin komu kannski á óvart til að byrja með en ekki þegar maður fór að hugsa málið betur. Það er kreppa í gangi og það kusu miklu færri en í fyrra. 69.000 atkvæði voru greidd í ár miðað við 120.000 í fyrra ef ég man rétt. Þá náði Eurobandið eitt og sér 70.000 atkvæðum og eins Eiríkur og Sylvía ef ég man þetta rétt. Jóhanna er með 19.076 atkvæði á bak við sig. En eins og ég segi, fólki fannst ekkert lag bera af í ár og var því alveg sama og tímdi ekki þessum smsum. Nema litlu stelpurnar sem fannst Jóhanna æði og kusu hana. Því fór sem fór og það þýðir ekkert að vera svekktur. Ég get ekki gagnrýnt úrslitin þegar ég kaus ekki sjálf.
En eftir partýið skutlaði Adda mér heim í yfirhalningu og gamli náði svo í mig og skultaði mér til Jórunnar í Múlasíðuna. Þar voru hún og Sigrún vinkona hennar að fá sér í glas og var bara þokkalegt stuð. Við fórum svo í bæinn. Fórum fyrst á Amour og það var fínt. Þaðan á Kaffi Ak þar sem allt var stappað, enda skíðapartý FM957 í gangi. Hitti Gunnu og Rósu og kannski einhverja fleiri. Týndi fljótt sjálfri mér og stelpunum og gafst upp vel fyrir lokun.
Labbaði svo út í Lönguhlíð í gær að ná í bílinn minn. Við erum að taka þátt í Lífshlaupinu í vinnunni, keppnin ansi hörð og maður notar hin ótrúlegustu tækifæri til að hreyfa sig. Í Lönguhlíðnni var Skuggagilsfamilían mætt nú þegar og við borðuðum afganginn af pizzunum. Ég fór svo heim og lagði mig eftir það allt. Fór svo til Öddu og Línu um kvöldið og horfði á Rétt áður en ég skreið uppí rúm með vini mínum Harry Potter.


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.02.2009 20:05:17 / bmwoman

Hvernig var X-Factorkeppendahelgin

Það er líklega best að reyna að berja saman hefðbundnum helgarpistli. Hann verður þó stuttur (það er kannski bara betra). Fór eins og svo oft áður upp í Hrafnagils á föstudagskvöldið og þar var spjallað yfir einum öl.
Ruslaðist í ræktina frekar seint morguninn eftir og ætlaði svo aldrei að koma mér í gang. Myglaðist bara allan daginn, horfði á imbann, las Harry Potter og sett í vélina. Fór svo í mat í Lönguhlíðina og við horfðum auðvitað á Eurovision. Úrslitin voru sanngjörn fannst mér. Nafna var með gott lag, en söngurinn skelfilegur. Unnur söng hins vegar eins og engill, en lagið ömurlegt. Jöfnustu atriðin komust semsagt áfram. En það er erfitt að átta sig á því hvernig þetta fer. Annars er ég búin að stofna grúppu á Facebook sem heitir Íslenskir Eurovisonnördar og þar er ég búin að ná sambandi við lið sem er álíka hooked á Eurovision og ég. Þar get ég rifist um Eurovision daginn út og inn svo þið hin sleppið betur í ár en undanfarið. Svo var ég að kenna gömlu á Fésbókina og er hún bara orðin ansi klár núna. En ég rauk svo heim í yfirhalningu og svo til Öddu Sig enn og aftur. Guðrún Sig kom líka, við fengum okkur nokkra öl, spáðum, speguleruðum og spjölluðum og fórum svo í Sjallann. Hið árlega fótboltamót verðbréfaguttana var í gangi, en það voru færri núna en áður, sem er kannski eðlilegt. En Adda stakk snemma af niður á Vélsmiðju. Ég náði líka að fara á Kaffið og Amour áður en yfir lauk.
Það var svo EKKERT gert á sunnudeginum heldur. Ég var allan daginn að hafa mig í að labba uppí Hrafnagils að ná í bílinn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2009 19:45:20 / bmwoman

Hvernig var Eurovisionkvöldið

Gleðilegt ár öllsömul. Ég hef greinilega tekið mér gott jólafrí frá blogginu. En hér er ég ennþá. Því miður er frá fáu að segja. Það sem á daga mína hefur drifið síðan síðast er ýmist svo ómerkilegt að það tekur því ekki að skrifa um það eða svo svakalegt að það er óprenthæft.
Ég ætla því bara að halda mig við það sem er hægt að skrifa um; Eurovisionpartýið sem var  í bankanum 16. janúar. Það var í einu orði sagt frábært. Flestir mættu í búningum og var hrein unun að sjá hvernig til tókst. Hingað til hef ég farið yfir sögu Eurovision, en núna eru allir komnir með hana á hreinu og því voru nokkur þemu og dagskráin eftirfarandi:

Upprifjun - Upphitun
Síðustu tvö Eurovisionkvöld hefur verið farið yfir sögu Eurovision. Núna eru allir komnir með hana á hreint og óþarfi að fara með sömu söguna aftur og aftur. En við byrjum samt á nettri upprifjun til að koma okkur í gírinn; Fyrst syrpa af sigurlögum og svo syrpa af 2. sætislögum. Svo verður farið yfir síðustu keppni útfrá sjónarhóli okkar piparkellinganna; undirritaðri og Öddu Sig.

Táslur
Það vakti eftirtekt í vor að sigurvegarinn var berfættur. Það er ekkert nýtt í sögu Eurovision. Sýndir verða nokkrir berfættir einstaklingar á Eurovision-sviðinu.

Martraðir skipuleggjenda
Þrisvar hefur verið tvísýnt um að keppandi hreinlega hafi það af að mæta á sviðið. Því fylgja þrjár skemmtilegar sögur sem verða sagðar hér.

Sænsku "ABBA-lögin"
Í tilefni af ABBA-æðinu sem tröllríður öllu þessa dagana og þeirrar endalausu umræðu um að Svíar séu að senda ABBA lög í keppnina ár eftir ár skulum við taka netta syrpu af sænskum lögum og komast til botns í málinu. Eru þetta allt ABBA lög eða erum við Íslendingar bara öfundsjúkir út í Svíana því þeim gengur yfirleitt betur en okkur?

Eftirminnileg ummæli íslensku kynnana
Hluti af Eurovisionskemmtuninni er að hlusta á íslensku kynnana. Jakob Frímann í stuði, spádómar Gísla Marteins og nærbuxnatal Sigmars.

Frægir tapa í Eurovision
Allir hafa heyrt um fræga fólkið sem hefur unnið í Eurovision og er þá oftast talað um ABBA og Celine Dion. En margir aðrir velþekktir einstaklingar hafa farið sárir frá Eurovisionkeppninni. Við sjáum nokkur brot af þeirra tilraunum til að öðlast frægð í keppninni.

Topp fimm – hallærislegustu boybönd Eurovisionsögunnar
Hvað er hallærislegra en Eurovision? Jú, boybönd. Til að komast í boyband þarftu að vera sætur, kunna að dansa eða syngja, eða  a.m.k. eitt af þessu. Þegar boybönd hafa tekið þátt í Eurovision hefur jafnvel ekkert af þessu átt við.

Hallærislegt á Eurovisionmælikvarða - kosning
Ég er búin að taka saman nokkur vel valin atriði úr sögu Eurovision sem eiga það sameiginlegt að vera MJÖG hallærisleg – eða það finnst mér a.m.k. Þið kjósið hallærislegasta Eurovisionatriðið í framhaldinu.

Úrslit úr hallæriskosningu
Eftir hlé var tilkynnt verður hvaða atriði var valið sem það hallærislegasta og það verður spilað í fullri lengd.

Núll stig
Mér var gefin bók í sumar sem er ekki frásögu færandi, nema hún heitir "Nul Points" og fjallar um flytjendurna sem urðu fyrir þeirri niðurlægingu að fá núll stig í Eurovision á árunum 1978-2003, þ.e. öll í sama stigakerfinu. Hún er hátt í 400 blaðsíður og ýtarleg en skemmtileg lesning (finnst mér). Að því tilefni verður sýnt brot úr nokkrum lögum sem hlotið hafa núll stig. Bókin verður líka til sýnis.

Afsakið, er þetta ekki söngvakeppni?
Eftir allar þessar hörmungar sem sýndar hafa verið í kvöld er kominn tími til að minna á að þetta er í raun söngvakeppni. Að þessu sinni skulum við fyrst og fremst hlusta, ekki horfa. Hér koma nokkrar eftirminnilegar raddir.

Hvíti sigurliturinn
Hvað þarf til að vinna Eurovision? Sumir halda því fram að trixið sé einfalt, að mæta í hvítu dressi, enda hafa margir í hvítu dressi unnið. Sýnt brot úr sigurlögum þar sem hvíti liturinn er áberandi í klæðnaði keppenda.

Islande douze pointe
Veljum íslenskt – veljum íslenskt heyrist allsstaðar. Af því tilefni verða sýnd brot úr bestu stundum Íslandsins okkar í keppninni.

Hver er í flottasta dressinu? - Kosning
Núna verða sýnd brot af þeim sem þið eruð í kvöld. Fólk kemur upp og sýnir sig til samanburðar og má syngja með og dansa ef þannig liggur á ykkur. Svo kjósum við um besta dressið eins og í fyrra.

Brjálað Eurovision-diskótek
Svo tekur auðvitað við brjálað Eurovisiondiskótek þar til yfir lýkur. Endilega biðjið um óskalögJ

Hallærislegasta atriðið var valið þýska framlagið 1979 sem lenti í 3. sæti. Dschinghis Khan flokkurinn flutti samnefnt lag.

Kosning um flottasta búninginn var tilkynnt eins og stig í Eurovision, gefin 1 til 8 stig og svo tían og tólfan. Úrslit urðu sem hér segir:

1 stig hlutu Jórunn og Gunna. Þær voru Baccara-stelpurnar (Lúxemborg 7. sæti 1978). Þær höfðu saumað kjóla úr plastpokum og sett á þá límmiða til að líkja eftir upprunalegu kjólunum og voru stórglæsilegar.

2 stig hlaut Bogi sem Mihai (Rúmenía 4. sæti 2006). Hann klikkaði ekki á gullkeðjunni og hélt uppi brjáluðu stuði.

3 stig hlaut Halla sem Maria Serifovic (Serbía 1. sæti 2007). Halla fór í Tiger og keypti sér daufustu lesgleraugun til að vera í stíl við Maríu.

4 stig hlaut Gurra sem Séverne (Mónakó 1. sæti 1971). Gurra var bæði með rétta hárkollu og notaði gamalt jólaskraut til að skreyta sig rétt.

5 stig hlaut Gulla sem Amina (Frakkland 2. sæti 1991) Gulla var með glæsilega hárkollu og var auk þess búin að æfa hreyfingarnar.

6 stig hlaut Sigrún sem Dathnir (Ísrael 8. sæti 1987). Sigrún var síðust á dagskrá með Huppa-Hulle atriðið og tók dansinn með trompi

7 stig hlaut Heiða P sem Birthe Kjær (Danmörk 3. sæti 1989). Heiða er búin að gefa út þá yfirlýsingu að hún vilji halda sig í 80´s stílnum og fékk að prófa að vera í rauðum kjól í þetta skiptið.

8 stig hlutu Halldór og Egill sem Umberto Tozzi og Raf (Ítalía 3. sæti 1987). Þeir félagar tjölduðu öll sem hægt var. Egill fór í hárlitun og leigði sér glæsilegan hvítan leðurjakka. Halldór var með hárkollu og í buxum af Nínu sem voru nógu þröngar. Þeir voru í karakter allt kvöldið; Halldór babblaði á ítölsku og Egill lét eins og hann væri í sínum venjulegu fötum á Kaffinu á eftir.

10 stig hlutu Ingi og Jónas sem Stebbi og Eyfi (Ísland 15. sæti 1991). Þeir voru að sjálfsögðu í réttum jökkum og Ingi með sokkabandið hennar Röggu á hausnum. Svo voru þeir þeir einu sem sungu með laginu sínu.

12 stig hlaut Siggi sem írski kalkúnninn Dustin (Írland 15. sæti fyrri forkeppni 2008). Eftir að Gestur hafði yfirgefið Sigga úr öðru atriði og skilið hann eftir í sárum sneri hann algjörlega við blaðinu. Mætti á svæðið í gulri regnslá, með gogg og vælandi hænu og náði upp þvílíkri stemmningu að Olsen bræður (hvort heldur orginallinn eða frægustu eftirhermurnar) fölnuðu í samanburðinum.

Aðrar sem mættu stórglæsilegar...
Ragga sem ABBA-gella (Svíþjóð 1974), Adda Sig sem Corrine Hérmes (Lúxemborg 1983), Júlía sem Natasha St Pier (Frakkland 2001), Anna Bjarka sem Magdí Rúza (Ungverjaland 2007), Regína sem Carola (Svíþjóð 1991)

Nú eftir þetta allt var brjálað Eurovisiondiskótek og svo fórum við hörðustu á Kaffið á eftir; ég, Jórunn, Gunna, Jónas, Ingi, Egill, Halldór, Gulla, Regína og Bogi. Það var mikið dansað og sumir vöktu talsverða athygli, enda enn í búning og jafnvel karakter.

 Jæja, er þetta ekki orðið ágætt í bili.... Það verður vonadi "alvöru" pistill í næstu viku.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2008 20:06:22 / bmwoman

Hvernig var "nei" helgin

Helgin var æði. Byrjaði hana eiginlega strax á fimmtudagskvöldið með því að fara á tónleika með Páli Óskari og Monicu í Akureyrarkirkju með múttu. Þeir voru æðislegir og maður heillaðist mjög auðveldlega með. Lotta, Halldóra og Óli voru líka á tónleikunum og komu í kaffi á eftir.
Ósk bauð mér svo í bíó á Four Christmases á föstudagskvöldið. Hlógum eins og asnar og skemmtum okkur vel. Skrapp svo aðeins í afmælis- og próflokapartý hjá Söndru, en stoppaði stutt og var bara edrú og stillt, enda voru flestir partýgestir taaaaaalsvert yngri en mín.
Laugardagurinn var bara hefðbundinn miðað við hvernig hefur verið í haust, ræktin og vinnan allan daginn. Það var svo innflutningsparý/hosukvöld hjá viðskiptaumsjón eða nánar tiltekið í nýja húsinu hjá Guðrúnu um kvöldið. Gaman að koma þangað, allt hannað eins og þau vildu hafa það. En það var mikið stuð. Farið í teygjuleikinn þar sem mátti ekki segja nei og furðufataleikinn. Fyrir þá sem eru með Facebook þá eru myndir þar, uss!
En eftir þetta var farið í bæinn. Fór með Jórunni, Maddý og Höllu Maríu á Amour og svo á Kaffið. Týndi þeim þar (eða sumar fóru heim) og þá fór ég á Vélsmiðjuna, en Adda og Guðrún höfðu farið þangað. Skemmti mér vel á öllum stöðum.
Gerði hins vegar mest lítið á sunndaginn. Setti í nokkar vélar eins og svo oft á sunnudögum og fór í mat í Lönguhlíðina. Þar var allur skarinn löngu mættur og hafði staðið yfir bakstur allan daginn sem ég fékk að smakka á mmmmmm 


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.12.2008 21:59:08 / bmwoman

Hvernig var súperspinninghelgin

Þvílík helgi ef helgi mætti kalla! Já það var sko ekki mikið djammað og djúsað – best að koma því að strax svo þeir sem ætla að lesa djammfréttir geti snúið sér að öðru. En föstudagskvöldið fór í sjónvarpsgláp. Á laugardaginn fór ég í ræktina og svo í vinnuna. Fór í mat í Lönguhlíðina og átti gott spjall við Atla. Fór svo í annað spjall í Hrafnagils. Vaknaði svo klukkan tíu á sunnudagsmorguninn og var mætti í súperspinning, 90 mínútna spinningtíma á Bjargi klukkan ellefu. Gunna var þarna líka og getur staðfest að ég mætti. Þetta var þrusutími. Það er ekki hægt að neita því og góð stemmning og góð tónlist og góður kennari og allir í stuði og allt það – nema ég sem var ekki að fýla að fara í ræktina svona snemma á sunnudagsmorgni. Hlunkaðist orkulaus í gegnum tímann og var alveg uppgefin eftir hann. Langaði mest uppí rúm að sofa. Ég fýla betur að vera timbruð heima á náttbuxunum á sunnudegi en taka þátt í svona rugli. En eftir talsverða kaffidrykkju fór ég í heimsókn til Ránar. Þaðan í vinnuna enn og aftur og svo eiginlega bara heim að sofa. Já þetta er ekki skemmtilegur pistill, ég veit það. Vonandi verður meira að frétta eftir næstu helgi.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18
Heimsóknir
Í dag:  14  Alls: 81301
Talning
Eftir 115 daga
Eurovision 2012 hefst:)
Könnun
Ertu komin(n) með leið á að ég tala ekki um annað en Eurovision hvort sem er hér, á Facebook eða þegar þú hittir mig?

Dagsetning
28. janúar 2012
Klukkan
Gamla bloggið